Damage
Tjón
Ökutæki - ferðavagnar

Trav­el trail­ers

Það er fátt ánægjulegra en útilega í íslenskri náttúru.  Þeir sem eiga ferðavagn eins og tjaldvagn, felli-eða hjólhýsi,  geta elt sólina nánast hvert á land sem er og komið sér fyrir með litlum fyrirvara á tjaldsvæði. En munum að öryggið er besti ferðafélaginn og hér að neðan eru nokkur góð ferðavagnaráð.

  • Ekki aka með ferðavagninn í hvassviðri. Ef að stöðugur vindur er 15-19 m/sek þá geta vindhviður feykt vagninum útaf.

  • Skoðunarmánuður ferðavagna er maí. Passið upp á að ferðavagninn ykkar sé skoðaður

  • Tengið alltaf öryggisvír eða keðju. Það gerist af og til að beisli kviklæsist og vagnar losni af króknum á ferð.

  • Lestið ferðavagninn jafnt og gætið þess að hann sé ekki of þungur. Gaskútar, reiðhjól, fortjald og annar farangur getur vegið þungt.

  • Upplýsingar um hvað bíllinn þinn má draga þungan vagn og þyngd vagnsins er að finna í skráningarskírteinum beggja ökutækja.

  • Í flestum útilegum er eldað á gasi. Þá er mikilvægt að hafa gasskynjara festan við gólfhæð, t.d. á lista undir neðri skáp. Própangas er þyngri lofttegund en súrefni og mun því safnast upp með gólfinu fyrst ef verður gasleki.

  • Góð loftræsting er lykilatriði þegar eldað er á gasi. Gætið þess að láta hylkin standa upprétt og skrúfa fyrir að lokinni notkun.

  • Slökkvitæki og eldvarnarteppi í ferðavagni eru skyldueign og reykskynjari sem virkar. Almennt eigum við svo að fara varlega með opinn eld í náttúrunni því af litlum neista verður oft mikið bál.

Góða ferð!

Share article:

facebookxmaillinkedin

Related articles

Articles overview
istockphoto-2157944183-1024x1024

Is your summer cottage fire-safe?

Summer houses are a sanctuary for relaxing during leisure time, and although many use their cottage throughout the year, summer is the time when most people stay there the longest.

Read more
Verktaki á byggingarsvæði

Prevention is the foundation of success

In today's increasingly complex business environment, it is no longer sufficient for companies to react to problems after they have occurred. Successful companies are built on prevention and a strong safety culture that reduces or eliminates risks before they result in losses. Such an approach is not only ethically correct but also financially sound.

Read more
Contents

Medical services while traveling

Vörður warns against the medical clinic Clinic Diamond in the Canary Islands due to fraud cases that have emerged in connection with the clinic. Staff working on behalf of the clinic have both over-treated people and subsequently charged them exorbitant amounts.

Read more
Get a quoteReport damage