Samstarf um forvarnir
Við setjum forvarnir í forgang og vinnum náið með fyrirtækjum og stofnunum í öryggis- og forvarnarmálum.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Við setjum forvarnir í forgang og vinnum náið með fyrirtækjum og stofnunum í öryggis- og forvarnarmálum.


Reynslan sýnir að góð öryggismenning kemur í veg fyrir slys og óhöpp, og dregur úr óvissu í rekstri.
Við hjá Verði leggjum áherslu á samstarf við okkar viðskiptavini og viljum tryggja að öryggi séu í lagi. Við getum aðstoðað við atriði eins og skipulag öryggismála, atvikaskráningu, eldvarnir, vinnuslys, vinnuvernd og umferðaröryggi. Rétt tryggð og örugg fyrirtæki eru betur í stakk búin til að takast á við skakkaföll.
Ágúst Mogensen er sérfræðingur í forvörnum hjá Verði.
Almenna forvarnarúttekt á starfsstöðvum þar sem farið er yfir vinnuaðstæður og áhættuþætti til að koma í veg fyrir slys og atvik.
Fyrirlestra fyrir starfsfólk fyrirtækisins þar sem farið er yfir öryggi við vinnu og umferðaröryggi.

Aðstoð og ráðgjöf við áhættumat starfa eins og greiningu á hættum og mótun varúðarráðstafana.

Fyrirtæki fá 30% afslátt af skráningarforritinu ATVIK sem hjálpar við skráningu og eftirlit með atvikum og slysum á skilvirkan hátt.
Árlega tjónafundi þar sem farið er yfir atvik, slys og forvarnir með það að markmiði að læra af reynslunni og bæta fyrirbyggjandi aðgerðir.
Sérsniðina forvarnarþjónustu sem byggir á óskum stjórnenda.


Brunavarnir eru lykilatriði til að tryggja öryggi starsfólks og viðskiptavina.

Vatnstjón er ein algengasta orsök tjóna hjá fyrirtækjum. Huga þarf sérstaklega að votrýmum og hafa sérstakan vara á veturna þegar það byrjar að frysta.
Nokkur góð ráð innandyra
Hafið auga með óeðlilegum raka, breyttri áferð (bólgum) á málningu, parketi eða múr.
Látið laga sírennsli í salerni, það velur raka á lögnum til lengri tíma.
Horfið eftir raka í gluggum og við útidyr.
Vatnsskynjarar geta verið góð forvörn og er hægt að tengja við öryggiskerfi.
Hreinsið gólfniðurföll reglulega svo þau stíflist ekki, sem og önnur niðurföll innandyra.
Komist að því hvar á að skrúfa fyrir vatnsinntök heita og kalda vatnsins. Merkið inntökin.
Nokkur góð ráð utandyra
Hreinsið niðurföll og rennur. Laufblöð og sandur getur stíflað frárennsli.
Almennt á vatn að renna frá húsinu þínu eða hafa greiða leið þaðan. Réttið af öfugan vatnshalla ef plön eru farin að síga, hafið niðurföll við kjallaratröppur. Vatnið þarf að komast sína leið.
Fylgist með ástandi glugga, hurða og klæðninga. Gott að er að þekkja viðhalds- og byggingasögu eignarinnar.
Viðbrögð við vatnsleka
Lokið strax fyrir vatnsinntakið.
Hafið sérstaka varúð ef vatnið er mjög heitt.
Ef erfitt er að eiga við aðstæðurnar eða möguleg hætta á ferðum hringið þá í 112.
Hafið samband við neyðarsímann til að fá aðstoð strax frá sérfræðingi.
Tilkynnið tjónið eins fljótt og mögulegt er.