Sumarhúsatrygging
Sumarhúsatrygging er samsett trygging sem hentar öllum sumarhúsaeigendum. Trygging sem verndar bæði sumarhúsið sjálft og innbú þess.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Sumarhúsatrygging er samsett trygging sem hentar öllum sumarhúsaeigendum. Trygging sem verndar bæði sumarhúsið sjálft og innbú þess.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur meira skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Sumarhúsatrygging er alhliða trygging fyrir alla eigendur sumarbústaða.
Sumarhúsatrygging er samsett úr tveimur tryggingum, þ.e. húseigendatrygging og innbústrygging. Þú getur séð ítarlegri upplistun á hvað er tryggt og hvað er ekki tryggt í upplýsingaskjali tryggingarinnar.
Innbú eru persónulegir munir sem almennt fylgja sumarhúsum og teljast ekki vera hluti af húseign eða almennu fylgifé hennar. Það er hægt að hugsa sér að innbú er allt það sem þú myndir flytja með þér á milli sumarbústaða.
Þegar þú selur eign er meginreglan sú að sumarbústaðartrygging fellur niður á sama tíma og brunatryggingin. Húseigendatrygging flyst aldrei sjálfkrafa á milli eigna við flutninga. Það þarf að segja innbústryggingunni upp sérstaklega.
Heitur pottur fellur ekki undir húseigendatryggingu og þarf þá að tryggja hann sérstaklega. Pallur og önnur sambærileg verðmæti fyrir utan útveggi húseignarinnar teljast ekki til húseignar nema þau verðmæti séu tiltekin í brunabótamati eignarinnar.
Það er misjafnt. Iðgjald Sumarhúsatryggingar fer annars vegar eftir tryggingarfjárhæð innbús og hins vegar brunabótamati sumarhússins. Sjálfsábyrgð er í innbús- og húseigandatjónum og kemur upphæðin fram á skírteini tryggingarinnar.
Tjón vegna vatns, gufu eða olíu, sem óvænt og skyndilega streymir fram og á upptök innan útveggja og sökkuls vegna bilunar eða mistaka.
Tjón sem verður ef yfirborðsvatn, sem orsakast af úrhelli eða asahláku, verður svo mikið að frárennslisleiðslur ná ekki að flytja það frá.
Tjón vegna frostsprungna á innanhúss vatnsleiðslukerfi.
Tjón á húseign af völdum innbrots eða innbrotstilraunar.
Tjón vegna utanaðkomandi vatns frá t.d grunnþakrennum, svölum eða frárennslisleiðslum.
Tjón vegna vatns sem þrýstist upp úr skolp- eða frárennslisleiðslum.
Tjón vegna grunnlagna sem eru missignar, morknar eða hafa á annan hátt hrörnað af notkun eða ónógri undirbyggingu
Tjón vegna sigs á grunni húseignarinnar, s.s vegna útskolunar á jarðvegi.
Tjón á innbúi af völdum eldsvoða, eldingar eða sprengingar.
Tjón á innbúi vegna sótfalls, slökkvi-, björgunar- og hreinsunaraðgerða vegna tjóns.
Tjón á innbúi vegna vatns, gufu eða olíu, sem óvænt og skyndilega streymir fram og á upptök innan útveggja og sökkuls vegna bilunar eða mistaka
Tjón á innbúi vegna innbrots, ráns eða skemmdarverks.
Tjón á innbúi vegna óveðurs, skyndilegs snjóþunga eða yfirborðsvatns vegna skyndilegs úrhellis eða asahláku.
Tjón sem verður vegna ófyrirsjáanlegrar stöðvunar á kælikerfi ísskáps eða frystikistu enda leiði það til skemmda á matvælum.
Tjón vegna ofhitnunar (suðu) á þvotti í þvottavél eða þurrkara ef tjónið stafar af bilun í þessum tækjum.
Sviðnun eða bráðnun á innbúi án þess að eldur verði laus.
Tjón vegna sóts eða reyks sem myndast smám saman vegna notkunar á eldstæði.
Tjón vegna hægs leka eða smits sem kemur smám saman fram.
Tjón vegna innbrots eða þjófnaðar úr fellihýsum, tjaldvögnum eða tjöldum.
Tjón vegna utanaðkomandi vatns s.s. frá þökum, þakrennum, svölum eða vegna sjávarfalla, flóða eða grunnvatns.
Tjón sem verður á ísskáp eða frystikistu vegna ófyrirséðrar stöðvunar á kælikerfi tækisins ef tækið er eldra en 5 ára og/eða ábyrgð seljanda nær ekki til tjónsins.
Tjón á þvottavélinni sjálfri vegna suðu (ofhitnunar).
Greiðir bætur gegn skaðabótaskyldu sem getur fallið á sumarhúsaeiganda vegna sumarhússins samkvæmt íslenskum lögum eða réttarvenjum.
Tjón sem fjölskylda húseiganda verður fyrir.
Tjón sem verður vegna atvinnu húseiganda, hvort sem um er að ræða eigin atvinnurekstur eða vinnu í þjónustu annarra.
Tjón á munum sem vátryggður hefur til afnota eða geymslu.
Tjón af völdum eldsvoða, vatns vegna slökkvistarfs, reyks, sóts eða sprengingar.
Tjón af völdum skyndilegra og ófyrirsjáanlegra atburða, sem ekki eru bótaskyld skv. hefðbundinni innbústryggingu sumarhúsa.
Hlut sem týnist, gleymist eða er skilinn eftir á almannafæri.
Tjón af völdum eðlilegs slits, ófullnægjandi viðhalds eða framleiðslugalla.
Tjón vegna þjófnaðar.
Tjón af völdum dýra.
Tjón á palli og smáhýsi af völdum eldsvoða, eldingar eða sprengingar.
Tjón á palli og smáhýsi vegna sótfalls, slökkvi-, björgunar- og hreinsunaraðgerða vegna tjóns.
Smáhýsi vegna vatns, gufu eða olíu, sem óvænt og skyndilega streymir fram og á upptök innan útveggja og sökkuls vegna bilunar eða mistaka.
Tjón sem verður ef yfirborðsvatn, sem orsakast af úrhelli eða asahláku, verður svo mikið að frárennslisleiðslur ná ekki að flytja það frá.
Tjón vegna frostsprungna á innanhúss vatnsleiðslukerfi smáhýsisins.
Tjón á palli og smáhýsi vegna innbrots, ráns eða skemmdarverks.
Brot eða hrun á loftklæðningum eða naglföstum innréttingum, sem rekja má til óvæntra og skyndilegra utanaðkomandi atburða.
Tjón vegna skyndilegs snjóþunga sem sligað hefur þak eða veggi smáhýsis.
Tjón á palli eða smáhýsi sem er bein afleiðing af óveðri eða roki þegar vindhraði fer yfir 28,5 m/s.
Sviðnun eða bráðnun á palli eða smáhýsi án þess að eldur verði laus.
Tjón vegna sóts eða reyks sem myndast smám saman vegna notkunar á eldstæði.
Tjón vegna hægs leka eða smits sem kemur smám saman fram.
Tjón vegna utanaðkomandi vatns frá t.d grunnþakrennum, svölum eða frárennslisleiðslum.
Tjón vegna vatns sem þrýstist upp úr skolp- eða frárennslisleiðslum.
Tjón vegna grunnlagna sem eru missignar, morknar eða hafa á annan hátt hrörnað af notkun eða ónógri undirbyggingu.
Tjón vegna sigs á grunni húseignarinnar, s.s vegna útskolunar á jarðvegi.
Tjón á þeim hlut sem veldur tjóni vegna vökvaútstreymis, svo sem rör, ofnar eða tæki.
Tjón á heitum pott af völdum eldsvoða, eldingar eða sprengingar.
Tjón á heitum pott vegna sótfalls, slökkvi-, björgunar- og hreinsunaraðgerða vegna tjóns.
Tjón á heitum pott sem er bein afleiðing af óveðri eða roki þegar vindhraði fer yfir 28,5 m/s.
Þjófnað og skemmdir á heitum potti sem valdið er af ásetningi í kjölfar þjófnaðar.
Frostsprungutjón á lagnakerfi pottsins.
Sviðnun eða bráðnun á heitum pott án þess að eldur verði laus.
Tjón vegna sóts eða reyks sem myndast smám saman vegna notkunar á eldstæði.
Flutningskostnað á potti vegna viðgerðar.