
Vinnustaðurinn
Við leggjum ríka áherslu á starfsánægju, jafnrétti og jákvætt starfsumhverfi. Með markvissri fræðslu og þjálfun byggjum við upp öflugt teymi þar sem hver einstaklingur fær að njóta sín og hafa raunveruleg áhrif.
Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.

Við leggjum ríka áherslu á starfsánægju, jafnrétti og jákvætt starfsumhverfi. Með markvissri fræðslu og þjálfun byggjum við upp öflugt teymi þar sem hver einstaklingur fær að njóta sín og hafa raunveruleg áhrif.
Við viljum vera eftirsóknarverður vinnustaður og skapa jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi
Framúrskarandi útskriftarnemum gefst kostur á að taka þátt í útskriftarprógrammi Arion og kynnast fjölbreyttum störfum innan samstæðunnar.
Fólk ver stórum hluta dagsins í vinnunni og því mikilvægt að umhverfið taki mið af þörfum þess. Í starfsstöðvum okkar eru þægindi í fyrirrúmi, falleg listaverk prýða veggina og passað er upp á hljóðvist í vinnurýmum.
Í mötuneyti höfuðstöðvanna ráða frábærir kokkar ríkjum. Ávallt er boðið upp á kjöt- eða fiskrétt – að ógleymdum grænkerarétti og salatbar. Þá er einnig að finna líkamsræktarsal, auk þess sem hægt er að skella sér í pool, fótboltaspil, golfhermi eða pílu á milli verkefna.


Það getur verið áskorun að samræma vinnu og einkalíf. Við höfum því sett okkur skýr markmið um að vera fjölskylduvænn vinnustaður og bjóðum bæði upp á sveigjanlegt starfsumhverfi og fjarvinnustefnu.
Við tryggjum starfsfólki að jafnaði 80% laun í fæðingarorlofi auk þess sem við bjóðum dagvistun fyrir börn starfsfólks til að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Sífellt fleiri kjósa að ganga, hjóla eða nota almenningssamgöngur til að komast til og frá vinnu. Við fögnum því og bjóðum starfsfólki sem nýtir sér umhverfisvænan ferðamáta samgöngustyrk.
Við greiðum einnig fyrir afnot af rafskútum HOPP á vinnutíma, sem er hentugt ef fólk þarf að skjótast á fund í næsta nágrenni.Við höfuðstöðvarnar má svo finna yfir 50 rafhleðslustöðvar þar sem starfsfólk getur hlaðið bíla sína.

Skjöldur, starfsmannafélag Arion, rekur ekki aðeins orlofshús víðs vegar um landið. Félagið starfrækir einnig hina ýmsu klúbba – svo allir starfsmenn ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Listvinir er stærsti klúbburinn sem starfræktur er innan Arion og telur rúmlega 500 meðlimi. Markmið klúbbsins er að efla áhuga og þekkingu starfsfólks á menningu og listum, auk þess að styðja við bakið á listafólki.
Klúbburinn stendur ekki aðeins fyrir áhugaverðum fyrirlestrum og námskeiðum, því tvisvar á ári eru svo haldin svokölluð listakvöld. Þar gefst meðlimum klúbbsins tækifæri á að eignast falleg og eiguleg verk – ef heppnin er með þeim.