Vegaaðstoð
Viðskiptavinir okkar í Grunni njóta ókeypis vegaaðstoðar allan sólarhringinn víða um land í samstarfi við Krók. Við vonum að þú náir á áfangastað án vandræða, en ef ekki hringdu í síma 514 1000 fyrir aðstoð.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Viðskiptavinir okkar í Grunni njóta ókeypis vegaaðstoðar allan sólarhringinn víða um land í samstarfi við Krók. Við vonum að þú náir á áfangastað án vandræða, en ef ekki hringdu í síma 514 1000 fyrir aðstoð.


Vegaaðstoðin er til staðar ef þú verður bensínlaus, ef dekk springur, ef rafgeymirinn tæmist, læsingar frosna eða ef þú læsist úti og kemst ekki inn í bílinn. Þú einfaldlega hringir í síma 514 1000 fyrir aðstoð.
Ef ekki er hægt að leysa málið á staðnum færðu 50% afslátt af flutningi innan þjónustussvæðis hjá Króki. Bíllinn er fluttur á næsta verkstæði eða heim í hleðslu ef svo ber við.

Höfuðborgarsvæðið
Akranes
Borganes
Reykjanes
Selfoss
Hveragerði
Akureyri
Egilsstaðar
Höfn
Ísafjörður
Þú getur hringt í síma 514-1000 fyrir aðstoð.
* Vörður vekur athygli á því að þjónustan er veitt innan skilgreindra þjónustusvæða Króks.
Vegaaðstoð er veitt viðskiptavinum í Grunni ef:
Hurðir eða læsingar ökutækisins eru frosnar.
Ökutækið er bensínlaust.
Ökutækið þarf start því rafgeymirinn er straumlaus/dauður.
Skipta þarf um dekk, en þá þarf varadekk að vera til staðar í ökutækinu.
Ökutækið er læst og þú kemst ekki inní hann.
Athugaðu að þjónustan er veitt innan skilgreindra þjónustusvæða Króks.
Ef ekki er hægt að leysa málið á staðnum færðu 50% afslátt af flutningi hjá Króki. Bíllinn er fluttur á næsta verkstæði eða heim í hleðslu ef svo ber við.
Þú getur séð gjaldskrá Króks hér.
Vegaaðstoð er ekki veitt ef:
Veður og/eða færð hamlar því að hægt sé að veita þjónustuna.
Ef bíllinn er fastur í snjó, drullu eða sandi.
Bíllinn hefur lent í tjóni.
Ökutækið er 20 ára eða eldra. Á bæði við um aðstoð á staðnum og flutning.
Bíllinn er atvinnutæki, yfir 3,5 tonn að þyngd og/eða lengri en sjö metrar.
Við getum samt sem áður leiðbeint þér með hvaða aðrir möguleikar eru í boði. Fjölmörg fyrirtæki bjóða uppá Vegaðstoð og er Krókur einn af þeim þjónustuaðilum.
Vegaaðstoð Varðar er ókeypis viðskiptavinum okkar í Grunni ef:
Hurðir eða læsingar ökutækis eru frosnar.
Bílinn er bensínlaus.
Bílinn þarf start því rafgeymirinn er dauður.
Skipta þarf um dekk, en þá þarf varadekk að vera til staðar.
Þú læsist úti og ert ekki að komast inn í bílinn.
Ef ekki hægt er að leysa verkefnið á staðnum þá færðu flutning í næsta þjónustuverkstæði eða heim í hleðslu ef svo bera við innan tilgreindra þjónustusvæða. Viðskiptavinir Varðar fá 50% afslátt af gjaldskrá Króks þurfi þeir flutning.
Viðskiptavinir Varðar sem eru í Grunni eiga rétt á Vegaaðstoð og geta nýtt sér aðstoðina í allt að þrjú skipti á ári. Börn viðskiptavina í Grunni sem hafa sama lögheimili og foreldri eða forráðamaður, geta einnig nýtt sér aðstoðina óháð ökutæki.
Til að vera í Grunni þurfa viðskiptavinir að vera með Heimilisvernd 2, 3 eða 4 með innbúskaskó innifalið og tvær aðrar tryggingar.
Til að vera í Grunni þurfa viðskiptavinir að vera með Heimilisvernd 2, 3 eða 4 með innbúskaskó innifalið og tvær aðrar tryggingar.
Þú einfaldlega hringir í síma 514 1000 fyrir aðstoð. Eftir lokun og um helgar er hringt í 514 1099.
Ef aðili uppfyllir ekki skilyrði fyrir Vegaaðstoð getum við samt sem áður leiðbeint þér með hvaða aðrir möguleikar eru í boði. Fjölmörg fyrirtæki bjóða uppá Vegaðstoð og er Krókur einn af þeim þjónustuaðilum. Þjónusta Króks er aðgengileg allan sólarhringinn alla daga ársins,símanr. 522-4600.