Tjón
Tjón
Barn að þrífa bíl

Bif­hjól

Bifhjól er samheiti yfir margar gerðir ökutækja, oftast á tveimur hjólum og nefnd mótorhjól í daglegu tali. Bifhjól geta einnig verið á þremur eða fjórum hjólum. Mikilvægt er að kynna sér eiginleika bifhjólsins því mismunandi réttindaflokkar gilda um mismunandi stærðir eins og fram kemur á vefsíðu Samgöngustofu.

Öryggi:
  • Notaðu viðeigandi hlífðarbúnað, föt, hjálm, hanska, skó og brynjur ef þú ert í torfæruakstri.

  • Hitaðu upp á vorin áður en þú ferð út í hjólasumarið. Við verðum öll stirð eftir veturinn. Hemlun, stýring, öfugstýring. Ef það er langt síðan þú fórst á bifhjól síðast er upplagt að taka einn til tvo tíma hjá ökukennara.

  • Gættu að akstri um gatnamót og treystu bara sjálfum þér.

  • Gættu að möl og öðrum óhreinindum á veginum. Brunnlok og yfirborðsmerkingar geta verð sleip og stundum safnast olía og óhreinindi upp í hringtorgum.

  • Gætið varúðar þar sem er nýlögð klæðning eða malbik, mögulega er veggrip þar lítið.

Fjölbreyttur flokkur ökutækja:
  • Bifhjól eru mjög fjölbreyttur ökutækjaflokkur með margvíslegum réttindaþrepum. Ef þú ert óviss um í hvaða flokki bifhjólið þitt er eða hvaða réttindi þú hefur, hringdu þá í Samgöngustofu eða kíktu á heimasíðuna þeirra.

  • Létt bifhjól í flokki 1 eru hönnuð fyrir akstur allt að 25 km/klst. Létt bifhjól í flokki 2 eru oft nefnd skellinöðrur hafa hönnunarhraða að 45 km/klst.

  • Svokölluð þung bifhjól eru svo flokkuð í lítið bifhjól og stórt bifhjól eftir ákveðinni reikniformúlu um hlutfall þyngdar hjólsins og afls og hámarkshestaflafjölda.

Vissir þú?
  • Fyrsta Harley Davidson mótorhjólið náði 40 km/klst. hraða.

  • Hraðametið á mótorhjóli er 605,69 km/klst.

  • Fyrsta mótorhjólið kom til Íslands 1905.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
Fjölskylda upp við vegg

Ef þú greinist á morgun, myndu núverandi tryggingar duga?

Flest vonum við auðvitað að aldrei komi til alvarlegra veikinda, hvorki hjá okkur sjálfum né ástvinum okkar. Staðreyndin er þó sú að enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Allt getur breyst á einu augabragði og þá skiptir máli að hafa fjárhagslegt öryggisnet sem hjálpar þér og fjölskyldunni að takast á við nýjar áskoranir.

Lesa meira
Bátur á sjó

Öryggi smábáta

Smábátasjómenn starfa oft einir eða með aðeins einn með sér. Við slíkar aðstæður geta lítil mistök haft alvarlegar afleiðingar.

Lesa meira
Efrtirvagn í bíl

Hættu­legasti tími ársins í um­ferðinni

Hjólhýsi og ferðavagnar taka á sig meiri vind en venjulegir fólksbílar og geta orðið óstöðug í hviðum, sérstaklega á opnum svæðum og brúm. Þess vegna er mikilvægt að fylgjast vel með spám frá Veðurstofu Íslands áður en lagt er af stað og vera tilbúin(n) að breyta áætlun ef aðstæður versna

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð