Brunatrygging ökutækja
Brunatrygging ökutækja bætir tjón sem verður á ökutæki vegna eldsvoða. Tryggingin hentar ökutækjum sem eru í geymslu eða án númera.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Brunatrygging ökutækja bætir tjón sem verður á ökutæki vegna eldsvoða. Tryggingin hentar ökutækjum sem eru í geymslu eða án númera.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur meira skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Tjón vegna eldsvoða, eldinga, eða sprenginga sem stafa af eldsvoða. Nær einnig til skemmda sem verða samtímis á varahlutum og fylgihlutum ökutækis sem teljast mega tilheyra eðlilegum útbúnaði.
Tjón á hreyfli vegna sprenginga í strokkum.
Tjón á aukaútbúnaði ökutækis, t.d. tengivögnum, GPS-tækjum, vörulyftum og krönum vörubifreiða, lausum toppgrindum og farangurskössum, nema um annað sé samið.

Margir kannast við að hafa fengið stein í framrúðuna á bílnum sínum. Ef viðgerð á rúðunni er möguleg greiðir Vörður viðgerðina að fullu og þú sparar þér eigin áhættu.

Það skiptir máli að bregðast rétt við þegar óhöpp gerast og því gott að hafa eftirfarandi í huga.

Hér má finna lista yfir helstu verkstæði og aðra þjónustuaðila okkar vegna bílatjóna.

Viðskiptavinir okkar í Grunni njóta ókeypis vegaaðstoðar allan sólarhringinn víða um land í samstarfi við Krók.