
Létt kaskótrygging
Létt kaskótrygging er nýjung sem bætir stór tjón sem hafa áhrif á öryggi og aksturshæfni bílsins en nær ekki yfir rispur, beyglur og aðrar minni háttar skemmdir - og er því 40% ódýrari.
Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.

Létt kaskótrygging er nýjung sem bætir stór tjón sem hafa áhrif á öryggi og aksturshæfni bílsins en nær ekki yfir rispur, beyglur og aðrar minni háttar skemmdir - og er því 40% ódýrari.
Þegar ökutæki eldast eða verðmæti þeirra lækkar getur hefðbundin kaskótrygging verið óþarflega víðtæk. Létt kaskótrygging er hagkvæmari kostur sem nær yfir stærri tjón sem hafa áhrif á öryggi eða notagildi ökutækisins en horfir fram hjá rispum, beyglum og öðrum minniháttar skemmdum.
Hér má finna helstu upplýsingar um trygginguna.
Fyrir eldri eða verðminni bíla getur hefðbundin kaskótrygging verið óþarflega umfangsmikil. Létt kaskótrygging býður upp á hagkvæmari lausn sem tekur mið af raunverulegum þörfum þínum og verðmæti ökutækisins – þú færð nauðsynlega vernd án þess að greiða fyrir áhættu sem skiptir minna máli.

Létt kaskótrygging er hönnuð fyrir eldri og verðminni bíla (verðmæti á bilinu 0,5 - 1,5 m.kr.). Ef þú ert með bílalán er yfirleitt gerð krafa um hefðbundna kaskótryggingu.
Ekki er heimilt að tryggja dráttarvélar, vélsleða, fjórhjól, mótorhjól, buggý-bíla og sambærileg ökutæki í léttri kaskótryggingu.
Tryggingin bætir bótaskylt tjón sem hefur áhrif á notagildi, öryggi eða ef viðgerðarkostnaður nær 50% af raunvirði bílsins.
Viðmið um áhrif á notagildi og öryggi er hvort tjónið orsaki að ökutæki fái endurskoðun eða akstursbann í skoðunarvottorði. Rispur, beyglur eða dældir þarf maður að laga sjálfur.
Bætir ekki minniháttar skemmdir eins og beyglur, rispur eða aðrar minniháttar skemmdir. Skilyrði fyrir bótaskyldu er að tjón hafi áhrif á notagildi, öryggi ökutækis eða að viðgerðarkostnaður sé 50% af verðmæti ökutækis.
Ef þú ert með bílalán er gerð krafa um hefðbundna kaskótryggingu.
Létt kaskó bætir aðeins stærri tjón sem hafa áhrif á öryggi eða notagildi bílsins (eða ef viðgerð kostar meira en hálft virði bílsins). Létt kaskótrygging bætir ekki litlar rispur, beyglur eða dældir sem skipta minna máli fyrir skoðun eða akstur - og er þar af leiðandi 40% ódýrari.
Við mælum frekar með kaskótryggingu ef verðmæti ökutækis er umfram tvær milljónir króna. Við mælum sérstaklega með léttri kaskótryggingu ef verðmæti er á bilinu 0,5 - 1,5 m.kr.
Þú átt ekki rétt á bílaleigubíl ef bíllinn þinn er á verkstæði og þú ert með létta kaskótryggingu.
Já, það er hægt að uppfæra úr léttri kaskótryggingu í hefðbundna kaskótryggingu, en slíkt kallar á nýtt áhættumat, til dæmis skil á myndum sem sýna ástand bíls.
Ef þú ert á bíl sem þú mátt ekki við að missa, en getur lifað með smá beyglu, þá er létt kaskótrygging sniðin að þínum þörfum.
Ef bíllinn er það verðlítið að það rétt fari upp fyrir eigin áhættu mælum við með því að sleppa kaskótryggingum alfarið.
Ef verðmæti er umfram 2 m.kr. og/eða þú vilt að hann sé alltaf í toppástandi. Þá mælum við með hefðbundinni kaskótryggingu.
Skilyrði bótaskyldu er að tjón hafi áhrif á notagildi, öryggi ökutækis eða viðgerðarkostnaður sé 50% af verðmæti ökutækis.
Tjón vegna áreksturs og áaksturs.
Tjón vegna veltu og hraps.
Tjón vegna eldsvoða eða sprengingar sem stafar af eldsvoða. Það telst ekki eldsvoði ef eldur verður ekki laus.
Tjón vegna þjófnaðar eða tilraunar til þjófnaðar og skemmdarverka.
Tjón vegna óveðurs, ef ökutæki fýkur eða ef vélarhlíf, skottlok eða hurðir fjúka upp.
Tjón af völdum aur- eða vatnsflóða, skriðufalla, snjóflóða, verkfallsaðgerða eða uppþota.
Tjón sem kemur til við kappakstur, aksturskeppni eða æfingar fyrir slíkan akstur.
Tjón sem kemur til ef sandur, möl, aska, vikur eða önnur laus jarðefni fjúka á ökutæki.
Tjón sem kemur til vegna steinkasts af vegi eða frá öðru ökutæki. Með steinkasti er hér átt við þann atburð þegar steinn eða steinar skjótast í bifreið og valda skemmdum á yfirborði ökutækis.
Tjón á undirvagni, vél- og rafbúnaði ökutækis vegna þess að ökutæki rekst niður í akstri, ekið er í holu eða grjót eða annar hlutur hrekkur upp undir ökutækið.
Tjón eða þjófnað á hvers kyns aukaútbúnaði ökutækis, t.d. símum, staðsetningartækjum, hleðslubúnaði, talstöðvum, vörulyftum og krönum vörubifreiða, skíðabogum, hjólafestingum, lausum farangursgrindum og ferðapallhýsum, nema um annað sé samið og þess getið á skírteini.
Glötun eða þjófnað á bíllyklum, fjarstýringum, aðgangskortum eða öðrum sambærilegum aðgangsbúnaði.
Tjón sem verður vegna hefðbundinnar umgengni, svo sem reykinga og neyslu matar og drykkjar í ökutæki.
Tjón á eftirvögnum eða öðrum tækjum eða búnaði sem tengdur er við ökutæki eða skeytt við það.
Tjón sem orsakast af vatnsflóði inn í ökutæki, eða hluta þess.
Rispur, beyglur, höggsár, sveigju eða núningsmerki sem hafa ekki áhrif á notagildi eða öryggi ökutækis. Viðmið um áhrif á notagildi og öryggi er hvort ákoma orsaki að ökutæki fengi endurskoðun eða akstursbann í skoðunarvottorð við lögboðna skoðun.