
Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.

Við bjóðum bæði greiðslur í netbanka og kortagreiðslur og þú getur dreift greiðslum í allt að 12 mánuði. Ef þú vilt getur þú einnig staðgreitt tryggingarnar þínar.
Greiðslur í netbanka eru sendar beint í netbankann þinn. Nýir viðskiptavinir eru sjálfkrafa í 12 mánaða greiðsludreifingu í netbanka.
Til að setja upp kortagreiðslur þarft þú fyrst að skrá kortaupplýsingarnar þínar á Mínar síður. Í kjölfarið getum við skuldfært af kreditkortinu þínu.
Ef þú vilt staðgreiða tryggingarnar þínar getum við sent þér greiðsluseðil í netbankann þinn fyrir allt tryggingatímabilið.
Greiðslugjöld | |
|---|---|
Greiðslugjald – pappír | 475 kr. |
Greiðslugjald – netbanki eða kort | 195 kr. |
Greiðsludreifing - vextir reiknast af eftirstöðvum | 6% |
Vanskil | |
|---|---|
Innheimtuviðvörun | 950 kr. |
Innheimt gegnum fjármögnunarleigu | 2.000 kr. |
Gildir frá 01.09.2020


Ef krafa hefur ekki verið greidd 2 dögum eftir eindaga sendum við þér áminningu með SMS-skilaboðum.
Mikilvægt er að samskiptaupplýsingar þínar séu réttar svo við getum haft samband. Þú uppfærir netfang og símanúmer inni á Mínum síðum.
Dráttarvextir reiknast skv. ákvörðun Seðlabanka Íslands.
Arion banki innheimtir gjaldfallin iðgjöld fyrir hönd Varðar. Kostnaður vegna innheimtubréfa er samkvæmt lið 4 í gjaldskrá bankans.
Ef krafa fer í lögfræðiinnheimtu leggst aukinn kostnaður á gjaldfallin iðgjöld samkvæmt gjaldskrá innheimtuaðila.
Ef þú átt von á endurgreiðslu frá okkur er mikilvægt að bankaupplýsingar þínar séu rétt skráðar. Þú skráir bankaupplýsingarnar þínar á Mínar síður undir Meira og Greiðsluleiðir.