Sjúkrakostnaðartrygging innanlands
Veitir sambærilega vernd og Sjúkratryggingar Íslands og hentar því þeim sem eru að flytja til landsins og eru ekki sjúkratryggðir innan almannatrygginga. Hentar einnig þeim sem dveljast tímabundið á Íslandi.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Veitir sambærilega vernd og Sjúkratryggingar Íslands og hentar því þeim sem eru að flytja til landsins og eru ekki sjúkratryggðir innan almannatrygginga. Hentar einnig þeim sem dveljast tímabundið á Íslandi.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur meira skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Kostnað við sjúkrahúsvist að læknisráði.
Kostnað við almenna læknishjálp utan sjúkrahúsa.
Kostnaður við nauðsynlegar rannsóknir og aðgerðir hjá sérfræðingum.
Nauðsynleg lyf.
Kostnað vegna óhjákvæmilegs ferðakostnaðar læknis til tryggðs og flutningskostnaðar tryggðs í sjúkrahús.
Kostnað vegna hjúkrunar í heimahúsum vegna alvarlegra sjúkdóma eða slysa sem eru innan bótasviðs tryggingarinnar enda komi heimalega í stað sjúkrahúsvistar.
Kostnað sem er bótaskyldur samkvæmt lögum um sjúkratryggingar eða reglugerðum settum samkvæmt þeim.
Slys sem varð fyrir gildistöku tryggingarinnar.
Sjúkdóma sem sýndu einkenni áður en trygging tók gildi.
Tannlækningar eða lýtalækningar nema um sé að ræða nauðsynlegar bráðaaðgerðir vegna bótaskylds slyss eða sjúkdóms.
Kostnað vegna meðgöngu, fæðingarhjálpar eða sjúkdóma sem rekja má til meðgöngu eða fósturláts.
Sjúkdóma eða slys sem rekja má til neyslu áfengis, ávana- eða fíkniefna.
Tjón af völdum hryðjuverka vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar.
Kostnað vegna ryskinga eða þátttöku í refsiverðum verknaði.
Vegna slysa sem verða í keppni í hvers konar íþróttum eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers konar íþróttum.
Fyrst þú ert að kynna þér líf- og heilsutryggingar þá gætir þú jafnframt haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.
Einstaklingur þarf að hafa haft lögheimili í landinu í sex mánuði til að vera tryggður af almannatryggingum. Þessi trygging er skammtímatrygging og gildir í sex mánuði frá komu til Íslands. Hún er sérstaklega hönnuð til að brúa bilið frá komu einstaklinga til landsins þar til þeir öðlast réttindi samkvæmt almannatryggingalögum.
Þeir sem eru að flytja frá öðru landi innan EES, Grænlandi eða Færeyjum, og voru tryggðir af almannatryggingum í þeim löndum, gætu verið tryggðir af almannatryggingum hér. Fyrir frekari upplýsingar, heimsæktu vefsíðu Sjúkratrygginga Íslands.
Tryggingin verður virk um leið og tryggði hefur lokið umsóknarferlinu og greitt fyrir trygginguna. Tryggingin hefst við komu til Íslands og lýkur þegar einstaklingurinn fær aðgang að almannatryggingum eða yfirgefur landið, en ekki síðar en 3 mánuðum eftir komu. Ef áætluð koma til Íslands er aflýst eða komudagur breytist, þarf að tilkynna það til Varðar áður en tryggingatímabilið hefst.
Sjúkrakostnaðartrygging veitir sambærilega vernd og sjúkratryggingar samkvæmt lögum um almannatryggingar, til dæmis sjúkrahúskostnað, lyfjakostnað og kostnað við læknismeðferð. Tryggingin er skyldubundin samkvæmt lögum nr. 112/2008 um almannatryggingar.
Tryggingarfjárhæðin er 2.000.000 kr. og sjálfsábyrgðin er 50.000 kr. fyrir heildarkostnað sem tryggingin nær yfir, auk kostnaðar sem sjúklingar þurfa að greiða samkvæmt gildandi lögum og reglum.