
Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.

Þegar þú nærð 18 ára aldri fellur þú ekki lengur undir líf- og sjúkdómatryggingar foreldra þinna og þarft að huga að þinni vernd sjálf/ur.
Við einföldum þér valið með Heilsupakkanum. Að vera ungur þýðir ekki að lífið sé áhættulaust – það þýðir bara að nú er besti tíminn til að tryggja þig á lægsta verðinu.
Hannað fyrir ungt fólk í námi sem vill gott öryggisnet án þess að það kosti of mikið.
Líftrygging 1.000.000 kr.
Sjúkdómatrygging 3.000.000 kr.
Örorkutrygging 6.000.000 kr.
Arion framtíð - 950 kr. á mánuði
Almennt verð - 1.156 kr. á mánuði


Arion framtíð er fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 23 ára sem vill meira frelsi, fleiri fríðindi og lausnir sem styðja við markmið þess.
Það er alls konar skemmtilegt í boði, t.d. launabónus og frítt Hopp í sumar og svo bjóðum við upp á fjármálafræðslu fyrir ungt fólk.
Það tekur enga stund að skrá sig!
Þú byrjar á því að opna Arion appið, ýtir á Meira og svo á Fríðindin mín.
Þar fylgir þú örfáum einföldum skrefum en í kjölfarið sérðu öll þau skemmtilegu og nýju fríðindi sem standa þér til boða.
Þetta tekur ekki nema 30 sekúndur – þú vilt ekki missa af þessu!
Það margborgar sig að vera rétt tryggður ef eitthvað kemur upp á. Þú tryggir þig nefnilega ekki eftir á.
Líftrygging er eins og öryggisnet fyrir fólkið sem þú elskar – ef eitthvað kemur fyrir þig þurfa þau í það minnsta ekki að hafa áhyggjur af fjármálunum.

Við getum öll lent í því að veikjast. Sjúkdómatrygging tryggir að þú getir náð þér á strik án þess að hafa fjárhagsáhyggjur.

Ef slys eða veikindi koma í veg fyrir að þú getir unnið tryggir örorkutrygging að þú hafir enn tekjur til að lifa lífinu.
