Ævilína
Lífið stækkar, verndin eykst.
Ævilínan þróast með þér og styrkist þegar lífið stækkar.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Lífið stækkar, verndin eykst.
Ævilínan þróast með þér og styrkist þegar lífið stækkar.

Það er auðvelt að gleyma tryggingunum þegar allt gengur vel. En þegar lífið tekur óvænta U-beygju er gott að hafa öryggisnet sem grípur þig. Við pössum að tryggingarnar fylgi þér og þínum takti.
Hér má finna helstu upplýsingar um Heilsupakkann
Það margborgar sig að vera rétt tryggður ef eitthvað kemur upp á. Þú tryggir þig nefnilega ekki eftir á.
Líftrygging er eins og öryggisnet fyrir fólkið sem þú elskar – ef eitthvað kemur fyrir þig þurfa þau í það minnsta ekki að hafa áhyggjur af fjármálunum.

Við getum öll lent í því að veikjast. Sjúkdómatrygging tryggir að þú getir náð þér á strik án þess að hafa fjárhagsáhyggjur.

Ef slys eða veikindi koma í veg fyrir að þú getir unnið tryggir örorkutrygging að þú hafir enn tekjur til að lifa lífinu.


Arion framtíð er fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 23 ára sem vill meira frelsi, fleiri fríðindi og lausnir sem styðja við markmið þess.
Það er alls konar skemmtilegt í boði, t.d. launabónus og frítt Hopp í sumar og svo bjóðum við upp á fjármálafræðslu fyrir ungt fólk.
Ævilínan kostar 1.850 kr. á mánuði ef þú ert í Arion framtíð. Almennt verð er 2.313 kr.
Ævilínan eru þrjár tryggingar í einum pakka. Tryggingafjárhæðin aðlagast og hækkar í takt við aðstæður þínar, til dæmis þegar fjölskyldan stækkar.
Líftrygging 2.000.000 kr. → ef þú fellur frá
Sjúkdómatrygging 6.000.000 kr. → ef þú greinist með alvarlegan sjúkdóm
Örorkutrygging 12.000.000 kr. → ef þú missir starfsgetu vegna veikinda og slysa
Líftryggingafjárhæðin hækkar sjálfkrafa ef þú giftir þig eða eignast barn. Fjárhæðirnar eru fastar og fyrirfram ákveðnar.
Ef þú eignast barn: 2.000.000 kr. fyrir hvert barn.
Ef þú giftir þig : 5.000.000 kr.
Hækkunin tekur gildi á næstu endurnýjun eftir giftingu eða barneign.
Í gegnum Arion appð, hér.
Það er einmitt ástæðan fyrir því að þú klárar málið núna – vegna þess að þú ert ung/ur. Tryggingar eru ódýrastar og einfaldastar áður en eitthvað kemur upp á. Því miður gerast óvæntir hlutir líka þegar maður er ungur. Heilsupakkinn tryggir að þú sért með fjárhagslegt öryggisnet ef eitthvað gerist.
Því fyrr, því betra. Þú tryggir þig ekki eftir á.
Því yngri og heilbrigðari sem þú ert, þeim mun lægri eru iðgjöldin.
Já. Ef foreldri vill greiða fyrir Heilsupakkann má hafa samband við Vörð í síma 514 1000, tilgreina fyrir hvern er greitt og um hvaða tryggingu er að ræða. Foreldrið er þá orðið greiðandi að Heilsupakkanum.