Sjúkra- og slysatrygging
Fjárhagsleg vernd fyrir tryggðan ef hann býr við varanlega örorku í kjölfar slyss eða sjúkdóms. Hægt er að bæta við vernd fyrir tímabundinni örorku og dánarbótum vegna slyss.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Fjárhagsleg vernd fyrir tryggðan ef hann býr við varanlega örorku í kjölfar slyss eða sjúkdóms. Hægt er að bæta við vernd fyrir tímabundinni örorku og dánarbótum vegna slyss.

Tryggingamál getur verið flókið – en það þarf ekki að vera þannig. Til að gera þetta einfaldara og skýrara höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem þú getur skoðað samhliða skilmálunum.
Fyrst þú ert að kynna þér líf- og heilsutryggingar þá gætir þú jafnframt haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.
Tímabundinn missi starfsorku vegna sjúkdóms ef starfsorkumissir er 50% eða meiri.
Varanlega læknisfræðilega örorku vegna sjúkdóms, ef örorka er 25% eða hærri.
Starfsörorkumissi sem kona verður fyrir á meðgöngutíma, við fæðingu eða fósturlát af völdum fylgikvilla.
Sjúkdóm sem fyrst hafði sýnt einkenni, áður en vátryggingin gekk í gildi, nema að félagið hafi vitað um sjúkdóminn við gildistökuna og veitt vátrygginguna þrátt fyrir það.
Tímabundinn missi starfsorku vegna slyss, ef starfsorkumissir er 50% eða meiri.
Varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss.
Dánarbætur vegna slyss.
Tannbrot sem rekja má til slyss.
Dagpeninga til tryggðs samkvæmt fjárhæð á skírteini allt að 2 vikur án biðtíma séu þeir hluti af tryggingarvernd viðkomandi, valdi ofbeldi í nánu sambandi því að tryggður þurfi að leita skjóls og hafi því ekki tök á að sinna vinnu sinni.
Tannbrot sem verður þegar vátryggður matast.
Slys sem verða við keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni.
Slys er verða við að klífa fjall, í bjargsigi, hnefaleikum, hvers konar glímu- og bardagaíþróttum, akstursíþróttum, drekaflugi, fallhlífarstökki, froskköfun og teygjustökki.
Slys sem verða í hvers kyns flugi, nema vátryggður sé farþegi í áætlunar- eða leiguflugi á vegum aðila sem hefur tilskilin leyfi hlutaðeigandi flugmálayfirvalda.
Tjón sem stafa af brjósklosi, þursabiti (lumago ischias), slitgigt eða hvers kyns öðrum gigtarsjúkdómum.
Slys sem beint eða óbeint orsakast af blindu, mikilli nær- eða fjarsýni, sjóndepru, heyrnardeyfð, lömun, bæklun, flogaveiki, slagi, sykursýki eða öðrum alvarlegum sjúkdómum og/eða sjúkdómseinkennum.