Tjón
Tjón
Sjór og reipi

Bruna­varnir fyrir­tækja

Brunahönnun húsnæðis þarf að vera í samræmi við þá starfsemi sem fer fram í húsinu. Þetta er lykilatriði til að tryggja öryggi starsfólks og viðskiptavina. Vörður leggur mikla áherslu á eldvarnir fyrirtækja og er það hluti af forvarnaheimsóknum okkar. Við könnum meðal annars eftirfarandi atriði:

  • Er brunaviðvörunarkerfi virkt í húsinu?

  • Eru rétt slökkvitæki í húsinu?

  • Hefur slökkvibúnaður verið tekinn út innan 12 mánaða?

  • Eru eldvarnarhurðir milli brunahólfa, lokaðar eða á seglum

  • Eru flóttaleiðir í lagi og útljós sem vísa veginn?

  • Eru aðvörunarkerfi tengd stjórnstöð

  • Er framkvæmt reglubundið Eigið Eldvarnareftirlit?

  • Er framfylgt reglum um logavinnuleyfi ef heit vinna er framundan?

Á heimasíðu Eldvarnabandalagsins má finna gagnlegt efni um eldvarnir, m.a. gátlista fyrir Eigið Eldvarnaeftirlit og leiðbeiningar um logavinnu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
Fjölskylda upp við vegg

Ef þú greinist á morgun, myndu núverandi tryggingar duga?

Flest vonum við auðvitað að aldrei komi til alvarlegra veikinda, hvorki hjá okkur sjálfum né ástvinum okkar. Staðreyndin er þó sú að enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Allt getur breyst á einu augabragði og þá skiptir máli að hafa fjárhagslegt öryggisnet sem hjálpar þér og fjölskyldunni að takast á við nýjar áskoranir.

Lesa meira
Bátur á sjó

Öryggi smábáta

Smábátasjómenn starfa oft einir eða með aðeins einn með sér. Við slíkar aðstæður geta lítil mistök haft alvarlegar afleiðingar.

Lesa meira
Efrtirvagn í bíl

Hættu­legasti tími ársins í um­ferðinni

Hjólhýsi og ferðavagnar taka á sig meiri vind en venjulegir fólksbílar og geta orðið óstöðug í hviðum, sérstaklega á opnum svæðum og brúm. Þess vegna er mikilvægt að fylgjast vel með spám frá Veðurstofu Íslands áður en lagt er af stað og vera tilbúin(n) að breyta áætlun ef aðstæður versna

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð