Kaskótrygging
Valfrjáls ökutækjatrygging. Bætir skemmdir á eigin ökutæki komi til tjóns sem eigandi sjálfur ber ábyrgð á eða ef ökutækið verður fyrir utanaðkomandi tjóni.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Valfrjáls ökutækjatrygging. Bætir skemmdir á eigin ökutæki komi til tjóns sem eigandi sjálfur ber ábyrgð á eða ef ökutækið verður fyrir utanaðkomandi tjóni.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur meira skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Tjón á tryggðu ökutæki vegna skyndilegra og óvæntra utanaðkomandi atvika sem ekki eru sérstaklega undanskilin eða takmörkuð í skilmála.
Tjón vegna eldsvoða eða sprengingar sem stafar af eldsvoða. Það telst ekki eldsvoði ef eldur verður ekki laus.
Tjón vegna þjófnaðar eða tilraunar til þjófnaðar og skemmdarverka.
Tjón vegna óveðurs, ef ökutæki fýkur eða ef vélarhlíf, skottlok eða hurðir fjúka upp.
Tjón af völdum aur- eða vatnsflóða, skriðufalla, snjóflóða, verkfallsaðgerða eða uppþota.
Tjón sem kemur til við kappakstur, aksturskeppni eða æfingar fyrir slíkan akstur.
Tjón sem verður rakið til hvers konar gæludýra.
Tjón sem kemur til ef sandur, möl, aska, vikur eða önnur laus jarðefni fjúka á ökutæki.
Tjón sem kemur til vegna steinkasts af vegi eða frá öðru ökutæki. Með steinkasti er átt við þann atburð þegar steinn eða steinar skjótast í bifreið og valda skemmdum á yfirborði ökutækis.
Tjón vegna efnisgalla, hönnunargalla, smíðisgalla, viðgerðargalla eða bilunar ökutækis.
Tjón vegna notkunar rangs eða óviðurkennds hleðslubúnaðar, eldsneytis, smurefnis, olíu eða annarra vökva.
Ákomur á undirvagni, vél- og rafbúnaði, dekkjum eða felgum ökutækis sem rýra ekki notagildi.
Tjón eða þjófnað á aukaútbúnaði ökutækis.
Tjón, slit og rýrnun ökutækis eða einstakra hluta þess vegna notkunar eða umgengni.
Tjón á eftirvögnum eða öðrum tækjum eða búnaði sem tengdur er við ökutæki eða skeytt við það.
Tjón á undirvagni á fjallvegum.
Tjón sem kemur til vegna flutnings á farmi nema tjónið verði rakið til umferðaróhapps.

Kaskó bætir tjón á bílnum sem ekki fæst bætt úr öðrum tryggingum.
Þú velur eigin áhættuna og greiðir alltaf sömu upphæð.
Bætir tjón á undirvagni á flestum vegum landsins, líka rafhlöður.
Bætir tjón vegna óveðurs, óháð vindstyrk.
Bætir ef eitthvað fellur á bílinn þinn, eins og hlutir í bílskúrnum.
Þetta er ekki tæmandi upptalning, kynntu þér skilmálana betur
Margir kannast við að hafa fengið stein í framrúðuna á bílnum sínum. Ef viðgerð á rúðunni er möguleg greiðir Vörður viðgerðina að fullu og þú sparar þér eigin áhættu.


Það skiptir máli að bregðast rétt við þegar óhöpp gerast og því gott að hafa eftirfarandi í huga.

Hér má finna lista yfir helstu verkstæði og aðra þjónustuaðila okkar vegna bílatjóna.

Viðskiptavinir okkar í Grunni njóta ókeypis vegaaðstoðar allan sólarhringinn víða um land í samstarfi við Krók.