Mundu eftir bílrúðumiðanum
Margir kannast við að hafa fengið stein í framrúðuna á bílnum sínum. Ef viðgerð á rúðunni er möguleg greiðir Vörður viðgerðina að fullu og þú sparar þér eigin áhættu.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Margir kannast við að hafa fengið stein í framrúðuna á bílnum sínum. Ef viðgerð á rúðunni er möguleg greiðir Vörður viðgerðina að fullu og þú sparar þér eigin áhættu.


Er brotið innan marka?
Ef skemmdin er minni en 100 krónu peningur og ekki í sjónlínu ökumanns eru góðar líkur á að hægt sé að gera við rúðuna.
Smelltu límmiðanum á
Þurrkaðu yfir skemmdina og smelltu svo á límmiðanum á til að stoppa brotið og verja það óhreinindum og raka.
Tilkynntu tjónið
Eftir að búið er að smella límmiðanum á þarf að tilkynna til okkar tjónið og fara á næsta bílrúðuverkstæði
Árið 2021 var hlutfall viðgerða á bílrúðum aðeins 11% á móti 89% þar sem skipt var um framrúðuna. Það samsvarar því að um 40 tonn af gleri fór í ruslið og 40 tonn af gleri voru flutt til landsins.

Ef það kemur skemmd í rúðuna er mikilvægt að bregðast fljótt við og setja bílrúðumiðann á skemmdina. Næsta skref er svo að tilkynna til okkar tjónið og fara sem fyrst á næsta viðurkennda bílrúðuverkstæði.
Þú getur á einfaldan og öruggan hátt tilkynnt hvers konar tjón á vef okkar sem flýtir fyrir afgreiðslu tjónsins.
Hér má finna lista yfir helstu verkstæði og aðra þjónustuaðila okkar vegna bílatjóna.
Er rafgeymirinn straumlaus? Vantar þig aðstoð við að skipta um dekk? Ertu bensínlaus? Er frostið að stríða þér? Eða er hurðin læst og þú kemst ekki inn í bílinn? Þá er Vegaaðstoð Varðar til staðar fyrir þig.

Bílrúðumiðinn stoppar brotið í rúðunni frá því að stækka sem eykur líkur á að hægt sé að gera við rúðuna. Þá þarf ekki að skipta henni út fyrir nýja með tilheyrandi kolefnisspori.
Ef viðgerð á rúðunni er möguleg þá greiðir Vörður allan kostnað af viðgerðinni. Sem þýðir engin eigin áhætta og ekkert úr þínum vasa.
Ef skemmdin er minni en 100 krónu peningur og ekki í sjónlínu ökumanns eru góðar líkur á að hægt sé að gera við rúðuna. Þurrkaðu yfir skemmdina og smelltu svo límmiðanum á til að stoppa brotið og verja það fyrir óhreinindum og raka. Farðu svo eins fljótt og mögulegt er á næsta viðurkennda bílrúðuverkstæði.
Ef viðgerð er ekki möguleg og skipta þarf um rúðu þá er eigin áhætta í rúðutryggingu 25% fyrir hvert tjón.
Það er mun fljótlegra að gera við rúðuna heldur en setja nýja í bílinn sem þýðir styttri bið fyrir þig.
Bílrúðumiðinn er ókeypis og hægt er að nálgast hann á skrifstofum okkar í Borgartúni 19, á Akureyri og í Reykjanesbæ eða með því að hafa samband við okkur og við sendum hann til þín.