Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Við viljum að þú njótir góðs af því að vera í viðskiptum við okkur. Markmiðið með Arion fríðindum er að umbuna viðskiptavinum okkar sem nýta sér fjölbreytta þjónustu samstæðunnar.
Fríðindakerfið skiptist í mismunandi stig þar sem viðskiptavinir færast ofar í kerfið eftir því sem fleiri þjónustuþættir eru nýttir og njóta þar með betri kjara og aukinna fríðinda.
Þú opnar Arion appið og fylgir örfáum einföldum skrefum. Í kjölfarið færðu góða yfirsýn yfir fríðindin þín og þær þjónustur sem þú ert með hjá okkur ásamt því að sjá hvaða auknu fríðindi standa þér til boða.


Fríðindareikningurinn er óbundinn og peningurinn því alltaf laus til notkunar. Vextir eru greiddir af höfuðstól vikulega, sem þýðir að sparnaðurinn þinn vex hraðar en nokkru sinni fyrr!
Ef þú ert í viðskiptum hjá Arion og með Heimilisvernd hjá Verði getur þú fengið allt að 7% endurgreiðslu af tryggingunum þínum.

Fríðindakerfið byggir á ákveðnum þjónustuþáttum. Því fleiri þætti sem þú ert með, því ofar kemstu í fríðindakerfið og nýtur þar með betri kjara.
Hér getur þú séð þjónustuþættina sem um ræðir:
Virk velta
Virkt kort
Íbúðalán eða bílalán hjá Arion
Viðbótarlífeyrissparnaður Arion eða Frjálsa
Heimilisvernd hjá Verði
Áskrift í sjóðum Stefnis
Ungt fólk
Ef þú ert 23 ára eða yngri tilheyrir þú þessu stigi – ef þú uppfyllir frekari skilyrði færist þú upp um stig. Miðað er við afmælisdag, svo daginn sem þú verður 24 ára falla umrædd fríðindi niður.
Stig 1
Þú þarft að vera með að minnsta kosti tvær þjónustur af þessum sex.
Stig 2
Þú þarft að vera með að minnsta kosti fjórar þjónustur af þessum sex.
Stig 3
Til að komast á stig 3 er skilyrðið að vera með yfir 10 milljónir í fjárhagsstöðu eða eiga fyrirtæki í viðskiptum, ásamt því að vera með þrjár virkar þjónustur.
Premía
Til að komast í Premíu-þjónustuna þarftu að vera með yfir 40 milljónir í fjárhagsstöðu, ásamt því að vera með þrjár virkar þjónustur.

Arion fríðindi er nýtt fríðindakerfi Arion og er markmiðið að umbuna viðskiptavinum okkar sem nýta sér fjölbreytta þjónustu Arion samstæðunnar.

Arion býður upp á víðtækustu fjármálaþjónustu á Íslandi. Við viljum að þú njótir góðs af því að eiga í viðskiptum við okkur og því bjóðum við upp á Arion fríðindi.

Árangur þinn skiptir okkur máli og viljum við að þú njótir góðs af því að vera með fjármálin og tryggingarnar á sama stað. Þess vegna færðu betri kjör ef þú ert bæði hjá Arion og Verði.