
Ferðavagnar
Góð ráð fyrir öruggari útilegu
Það er fátt ánægjulegra en útilega í íslenskri náttúru. Þeir sem ferðast með ferðavagn — tjaldvagn, fellihýsi eða hjólhýsi — geta elt sólina nánast hvert á land sem er og komið sér fyrir með litlum fyrirvara á tjaldsvæði.
En þegar lagt er af stað skiptir öryggið alltaf mestu máli. Hér eru nokkur góð ráð sem hjálpa þér að ferðast örugglega með ferðavagninn.
Ekki aka með ferðavagninn í hvassviðri
Forðastu að aka með ferðavagn í hvassviðri. Ef stöðugur vindur er 15-19 m/sek þá geta vindhviður orðið hættulegar og jafnvel feykt vagninum út af veginum.
Er vagninn með skoðun?
Skoðunarmánuður ferðavagna er maí. Passið upp á að ferðavagninn ykkar sé skoðaður og í góðu ásigkomulagi áður en ferðin hefst.
Notaðu öryggisvír eða keðju
Notaðu alltaf öryggisvír eða keðju milli bíls og vagns. Í undantekningartilvikum getur beisli losnað eða ekki læstst rétt, sem getur valdið því að vagninn losni frá dráttarkróknum á ferð.
Gættu að þyngdinni í vagninum
Hlaðið ferðavagninn jafnt og passið að hann verði ekki of þungur. Gaskútar, reiðhjól, fortjald og annar farangur geta fljótt bætt við þyngd. Gakktu einnig úr skugga um hvað bíllinn má draga og hver heildarþyngd vagnsins er — upplýsingarnar eru í skráningarskírteinum beggja ökutækja.
Gasnotkun
Í flestum útilegum er eldað á gasi. Tryggðu að gasskynjari sé til staðar og staðsettur við gólfhæð þar sem própan er þyngra en loft og safnast fyrst þar fyrir við leka. Góð loftræsting er nauðsynleg við gasnotkun. Gakktu úr skugga um að gaskútar standi uppréttir og að skrúfað sé fyrir þá eftir notkun.
Eldvarnir í fyrirrúmi
Slökkvitæki, eldvarnarteppi og virkur reykskynjari eru nauðsynlegur öryggisbúnaður í ferðavagninn. Almennt eigum við svo að fara varlega með opinn eld í náttúrunni því af litlum neista verður oft mikið bál.
Góða og örugga ferð!


