
Ef þú greinist á morgun, myndu núverandi tryggingar duga?
Flest vonumst við til þess að alvarleg veikindi komi aldrei til. Raunveruleikinn er hins vegar sá að enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Á einni stundu getur allt breyst, og þá skiptir máli að hafa fjárhagslegt öryggisnet sem hjálpar þér og fjölskyldunni að takast á við nýjar áskoranir.
Bleikur október minnir okkur á mikilvægi forvarna, reglulegrar skimunar og þess að huga að heilsunni. Hann er líka gott tilefni til að spyrja sig annarrar spurningar: Ef ég greinist á morgun með alvarlegan sjúkdóm, munu tryggingarnar mínar duga?
Kostnaðurinn er oft meiri en við gerum okkur grein fyrir
Þegar alvarleg veikindi koma upp beinist athyglin eðlilega að því að endurheimta heilsuna. Samhliða því koma oft upp ófyrirséð útgjöld, svo sem vegna endurhæfingar, lyfja, ferðalaga og breytinga á daglegu lífi. Fyrir marga fylgir þessu fjárhagslegt álag á sama tíma og fjölskyldan stendur frammi fyrir erfiðum aðstæðum.
Tekjurnar lækka hraðar en útgjöldin
Þegar einstaklingur greinist með alvarlegan sjúkdóm eru talsverðar líkur á að fjarvera frá vinnu vari lengur en sex mánuði. Launþegar verða fyrir skerðingu á launagreiðslum eftir að veikindarétti samkvæmt kjarasamningi lýkur, en algengt er að hann sé þrír til sex mánuðir. Ef óvinnufærnin er langvarandi getur myndast réttur til örorkulífeyris úr lífeyrissjóði sem nær ekki að bæta skertar tekjur að fullu. Þótt tekjurnar minnki halda reikningarnir áfram að berast; húsnæðiskostnaður, afborganir lána og dagleg framfærsla hverfa ekki þótt veikindi komi upp
Ertu með vernd sem hentar þinni stöðu?
Margir gera ráð fyrir að þeir séu vel tryggðir en hafa ekki skoðað tryggingavernd sína í mörg ár. Aðstæður í lífinu geta hins vegar breyst hratt. . Við eignumst börn, tökum húsnæðislán, skiptum um starf eða aukum skuldbindingar.
Þess vegna er mikilvægt að fara reglulega yfir tryggingarnar og ganga úr skugga um að verndin endurspegli raunverulegar þarfir í dag en ekki þær sem voru fyrir fimm eða tíu árum. Réttindi launþega eru einnig misjöfn eftir kjarasamningi, starfsaldri og lífeyrissjóði, og því er gott að vita hvar þú stendur.
Fjárhagslegt öryggi þegar mest á reynir
Sjúkdómatrygging veitir eingreiðslu við greiningumargra algengra alvarlegra sjúkdóma. Sú greiðsla getur brúað tekjuskerðinguna og mætt auknum útgjöldum, svo þú getir einbeitt þér að bata og meðferð í stað þess að hafa áhyggjur af fjármálunum.
Engin trygging getur komið í veg fyrir veikindi, en rétt tryggingavernd getur dregið úr fjárhagslegum áhyggjum þegar mest á reynir.
Taktu tvær mínútur fyrir framtíðina
Bleikur október er áminning um að hugsa um heilsuna og jafnframt um fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar. Taktu þér augnablik til að fara yfir tryggingarnar þínar og spyrja sjálfa(n) þig:
Ef ég greindist á morgun, myndu núverandi tryggingar duga?

