Tjón
Tjón
Ökutæki - skottið opið

Bif­reiðar

Við þekkjum flest að í umferðinni leynast ýmsar hættur. Til að auka öryggi í umferðinni þurfum við til dæmis að stilla hraða í hóf, spenna bílbeltin og vera í góðu ökuhæfu ástandi. Það er mikilvægt að halda umræðunni um umferðaröryggi á lofti enda eru banaslys í umferðinni ein aðalástæða ótímabærra dauðsfalla, bæði á Íslandi og í heiminum.

Nokkur góð ráð
  • Pössum okkur að virða ávallt hámarkshraða og metum hraðann út frá aðstæðum.

  • Höfum gott bil á milli bíla, sérstaklega í hálku að vetri.

  • Geymum símann ávallt í vasanum.

  • Verum alltaf vel upplögð, allsgáð og laus við þreytu þegar við setjumst upp í bíl.

  • Notum stefnuljósin.

Vissir þú?
  • 2% íslenskra ökumanna telja sig undir meðallagi góða ökumenn.

  • Skortur á notkun stefnuljósa, farsímanotkun og of hægur akstur fer mest í taugarnar á bílstjórum.

  • 18-20% þeirra sem fórstu í umferðarslysum síðastliðna tvo áratugi væru sennilega á lífi í dag hefðu þau notað bílbelti.

  • 79% Íslendinga finnst óásættanlegt að aka bifreið eftir að hafa neytt áfengis, 70% á rafhlaupahjóli og 50% á reiðhjóli.

  • 22% viðurkenna að hafa skrifað skilaboð meðan á akstri stendur.

  • Líklega hafa 4% ökumanna dottað undir stýri síðastliðna sex mánuði miðað við rannsóknir undangenginna ára.

Þú getur nálgast ítarlegri upplýsingar um umferðarlögin og umferðartölfræði á vef Samgöngustofu. Þá eru mjög gagnlegar upplýsingar um færð á vegum og veður á síðu Vegagerðarinnar.

Ef þú ert að fara á fjöll eða inn á hálendið mælum við með að kíkja á safetravel.is

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
Fjölskylda upp við vegg

Ef þú greinist á morgun, myndu núverandi tryggingar duga?

Flest vonum við auðvitað að aldrei komi til alvarlegra veikinda, hvorki hjá okkur sjálfum né ástvinum okkar. Staðreyndin er þó sú að enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Allt getur breyst á einu augabragði og þá skiptir máli að hafa fjárhagslegt öryggisnet sem hjálpar þér og fjölskyldunni að takast á við nýjar áskoranir.

Lesa meira
Bátur á sjó

Öryggi smábáta

Smábátasjómenn starfa oft einir eða með aðeins einn með sér. Við slíkar aðstæður geta lítil mistök haft alvarlegar afleiðingar.

Lesa meira
Efrtirvagn í bíl

Hættu­legasti tími ársins í um­ferðinni

Hjólhýsi og ferðavagnar taka á sig meiri vind en venjulegir fólksbílar og geta orðið óstöðug í hviðum, sérstaklega á opnum svæðum og brúm. Þess vegna er mikilvægt að fylgjast vel með spám frá Veðurstofu Íslands áður en lagt er af stað og vera tilbúin(n) að breyta áætlun ef aðstæður versna

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð