Tjón
Tjón

31.07.2026

Hættu­leg­asti tími ársins í umferð­inni

Í fyrra slösuðust 182 í alvarlegum umferðarslysum og 10 létust samkvæmt skýrslu Samgöngustofu en árið áður slösuðust 228 alvarlega og 13 létust. Sem fyrr voru flest alvarlegu slysin yfir sumarmánuðina og sýna meðaltalstölur sl. 10 ár að sumrin og sérstaklega ferðamestu helgarnar eru hættulegasti tíminn í umferðinni. En af hverju er þetta svona og hvað getum við gert til þess að draga úr slysum á þjóðvegunum? Hér eru nokkur góð ráð um hvernig er best að haga sér í umferðinni til að lágmarka hættuna.

Beltin bjarga og hraðinn drepur

Af þeim 192 sem slösuðust alvarlega eða létust árið 2025 voru 80 ökumenn eða farþegar í fólksbifreiðum. Það eru ýmsar leiðir til að fækka slysum og draga úr meiðslum í fólksbifreiðum og ber fyrst að nefna að spenna beltin alltaf. Samkvæmt upplýsingum Samgöngustofu velja ungmenni á aldrinum 18-24, í auknu mæli, að sleppa að spenna bílbelti og er það slæm þróun. Mikilvægt er að ræða beltanotkun við unga fólkið því þú fjórtánfaldar líkurnar á að láta lífið í bílslysi með því að nota ekki bílbelti samkvæmt upplýsingum Samgöngustofu. Hraðakstur er afar hættulegur og hefur kostað mörg mannslíf gegnum tíðina. Erfiðara er að bregðast við mistökum á miklum hraða, hættara við að missa stjórn á bifreiðinni og árekstrar verða harðari. Þá er hætta á missa prófið eða þurfa að borga himinháar sektir alltaf til staðar því sá sem ekur á 125 km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. getur átt von á 120.000 króna sekt og 2 punkta. Það er því til mikils að vinna að allir spenni beltin og keyri á löglegum hraða.

Athyglisþjófurinn

Árið 2025 sögðust 12% ökumanna tala í farsíma án handfrjáls búnaðar stundum eða oft og 25% sögðust gera það sjaldan. Þessi athyglisþjófur er of algengur í umferðinni og veldur hættu þar sem ökumenn eru ekki með fulla athygli við aksturinn. Látum símana vera meðan á akstri stendur og tengjum símann við bílinn eða heyrnatól ef við þurfum nauðsynlega að hringja eða svara símtölum. Að stilla síma á akstursstillingu (Driving focus/Driving mode) áður en haldið er af stað dregur úr áreiti frá símanum og óþarfa truflun.

Gilda aðrar reglur í sumarleyfinu?

Árið 2020 voru reglur sem segja til um hvort ökumaður geti stjórnað ökutæki örugglega eftir áfengisneyslu breytt og viðmiðið lækkað úr 0,5‰ áfengis í blóði í 0,2‰. Var þetta gert í ljósi fjölda alvarlegra umferðarslysa þar sem ölvunarakstur kemur við sögu. Ölvunarakstur er ekki einkamál þess sem ekur því hann getur haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir aðra ökumenn, farþega og vegfarendur almennt. Nú um hásumar er rétt að ítreka að það gilda sömu reglur um ölvunarakstur hvort sem þú ert að aka í vinnuna, dvelur í sumarhúsinu, hjólhýsinu, veiðihúsi eða golfskálanum. Eftir einn ei aki neinn, alltaf!

Ferðavagnar og húsbílar

Hjólhýsi og ferðavagnar taka á sig meiri vind en venjulegir fólksbílar og geta orðið óstöðug í hviðum, sérstaklega á opnum svæðum og brúm. Þess vegna er mikilvægt að fylgjast vel með spám frá Veðurstofu Íslands áður en lagt er af stað og vera tilbúin(n) að breyta áætlun ef aðstæður versna. Í þessum aðstæðum er ekki hugrekki að halda áfram; það er ábyrgð að snúa við eða bíða. Þegar jafn vindur er 15-19 m/sek geta hviður orðið allt að 25 m/sek og ökutækin fokið útaf veginum.

Að lokum má minna á að hafa þolinmæðina með í ferðalagið því hún er þægilegur ferðafélagi þegar langar raðir myndast á þjóðvegum landsins. Njótum og komum heil heim.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Er mynstrið þitt nægi­lega djúpt?

Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum.

Lesa meira
2. nóvember 2026

Vörður og Arion styrkja Reykjalund um þrjár milljónir

Við hjá Verði og Arion banka erum stolt af því að starfa með fjölmörgum framúrskarandi fyrirtækjum um land allt. Í tilefni af viðurkenningu þeirra höfum við á undanförnum árum stutt við mikilvæg samfélagsverkefni í þeirra nafni.

Lesa meira
23. október 2026

Vörður aðalbakhjarl Körfuknattleiksdeildar Hattar

Vörður tryggingar og Körfuknattleiksdeild Hattar hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning. Samkvæmt samningnum verður Vörður aðalbakhjarl deildarinnar og mun heimavöllur Hattar jafnframt bera nafnið Varðarhöllin.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð