Tjón
Tjón

12.10.2026

Vel sótt­ur netöryggisvið­burður hjá Verði

Vörður hélt vel sóttan netöryggisviðburð þann 8. október síðastliðinn. Fulltrúar fjölda fyrirtækja hlýddu á erindi og tóku þátt í líflegum samræðum.

Á fundinum fóru sérfræðingar yfir helstu áskoranir sem fyrirtæki standa frammi fyrir nú í dag, meðal annars í tengslum við netárásir, svik og gagnaleka. Notuð voru raunveruleg dæmi sem sýndu fram á mikilvægi þess að fyrirtæki séu vel undirbúin og hafi skýra viðbragðsáætlun.

Fjölmenni var í húsinu og skapaðist góð umræða um málefnið. Við þökkum þeim sem komu hjartanlega fyrir þátttökuna og hlökkum til að miðla áfram af þekkingu okkar á næstu viðburðum.

 

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
12. október 2026

Vel sóttur netöryggisviðburður hjá Verði

Vörður hélt vel sóttan netöryggisviðburð þann 8. október síðastliðinn. Fulltrúar fjölda fyrirtækja hlýddu á erindi og tóku þátt í líflegum samræðum.

Lesa meira
7. október 2026

Er skynjari á vaktinni í bú­staðnum?

Að koma að eign sinni á floti er lífsreynsla sem við óskum engum. Leki sem er ekki stöðvaður í tæka tíð getur valdið mjög miklum skaða, ónýtum gólfefnum, vatnsmettuðum innréttingum og veggjum.

Lesa meira
6. október 2026

Eftir vel heppnuð skyndihjálparnámskeið bætast fleiri við í vor

Í síðustu viku stóð Vörður fyrir fjórum skyndihjálparnámskeiðum í samstarfi við Rauða krossinn. Námskeiðin voru haldin á þremur tungumálum og voru sérstaklega ætluð foreldrum og forráðamönnum barna.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð