Tjón
Tjón

27.11.2026

Vörður tví­tug­ur: „Trygginga­vernd snýst um að lesa í sam­félagið“

Við gripum Guðbjörgu Heiðu, forstjóra Varðar, í stuttan kaffibolla í tilefni 20 ára afmælis Varðar nú í nóvember 2026. Síðustu ár hafa verið viðburðarík hjá Verði og það stendur ekki á svörum forstjórans þegar við innum hana eftir því hvað standi upp:  

„Fyrst og fremst þær frábæru viðtökur sem félagið hefur fengið, en á þessum tuttugu árum höfum við farið úr því að vera með um 6% markaðshlutdeild í 19% og þjónustum nú yfir 70.000 viðskiptavini. Það er árangur sem við megum svo sannarlega vera stolt af og fagna á þessum tímamótum.“ 

Tryggingaverndin þarf að þróast með samfélaginu 

Tuttugu ára afmæli Varðar má rekja til ársins 2006 þegar nýir eigendur tóku við félaginu og nafninu var breytt úr Verði Íslandstryggingu í Vörður tryggingar hf. Árið 2016 keypti Arion svo félagið og í kjölfarið var það sameinað líftryggingafélaginu Okkar lífi. Þar með varð Vörður alhliða vátryggingafélag. 

Saga félagsins nær reyndar enn lengra aftur, eða um hundrað ár, til þess þegar Vélbátasamtrygging Eyjafjarðar var stofnað árið 1926. Þá snerust tryggingarnar fyrst og fremst um að tryggja bátana, enda endurspegla tryggingar þarfir og gerð samfélagsins á hverjum tíma. Að sögn Guðbjargar Heiðu hefur sú hugsun alltaf verið hluti af DNA-mengi Varðar. 

„Við leitum stöðugt leiða til að þjónusta viðskiptavini okkar betur og greina hvar þörf er á betri tryggingavernd,“ segir hún. Þetta komi meðal annars fram í ýmsum nýjungum sem Vörður hefur kynnt til leiks á síðustu árum, á borð við frjósemisvernd, meðgöngu- og foreldravernd og neyðaraðstoð vegna ofbeldis í nánu sambandi . Nýjungarnar endurspegla þá hugsun að tryggingar þurfi að þróast í takt við breytt samfélag og raunverulegar þarfir fólks. 

„Tryggingaverndin má aldrei standa í stað, hún þarf að þróast með samfélaginu. Við þurfum að spyrja: Hvað þarf fólk í dag? Við erum þjónustufyrirtæki og eigum að nálgast hlutverk okkar af auðmýkt, skilningi og löngun til að styðja alltaf betur og betur við bakið á viðskiptavinum okkar.“ 

Tjónaþjónusta Varðar sú besta 

Metnaður Varðar hefur verið mikill á síðustu tuttugu árum og minnkaði sannarlega ekki með sameiningunni við Arion. Í nýlegri samanburðarmælingu EMC þar sem spurt er um tjónaþjónustu tryggingafélaganna er Vörður í fremstu röð í öllum þeim fimm þáttum sem mældir eru og hefur verið það síðustu 3 mælingar. Alls voru 92% viðskiptavina mjög eða frekar sammála. Þessi árangur rímar vel við innri mælingar Varðar sem hafa vaxið í takt við öll þau fjölmörgu verkefni sem ráðist hefur verið í á síðustu árum.  

„Þetta er mjög flottur árangur og mikil vinna sem liggur að baki; viðskiptavinurinn vill auðvitað fá gott viðmót, skilning og hraða afgreiðslu,“ segir Guðbjörg Heiða. „Á síðasta ári afgreiddum við yfir 26.000 tjón, sem er auðvitað gríðarmikið verkefni. Starfsfólkið okkar stóð sig með einstökum sóma og ég er gríðarlega stolt af fólkinu okkar.“ 

Kúnstin að sameina bein samskipti og stafræna þjónustu 

En hvar hafa stærstu áskoranirnar legið á síðustu árum? 

„Það hefur verið margslungið verkefni að finna rétt jafnvægi á milli þess að vera til staðar í eigin persónu og að bjóða góða stafræna þjónustu allan sólarhringinn. Fólk nútildags vill hvorttveggja og kúnstin felst í því að tengja þessa tvo heima saman.“ 

Þar hefur samstarfið við Arion banka skipt miklu máli. Vörður getur nú veitt þjónustu í útibúum Arion og Varðar um land allt, samhliða því að byggja áfram upp stafrænar þjónustuleiðir. 

„Við erum með kraftmikið og skapandi starfsfólk sem er staðsett vítt og breitt um landið. Sú nálægð skiptir máli. Við viljum að viðskiptavinir geti valið hvernig þeir eiga samskipti við okkur, hvort sem það er augliti til auglitis eða með stafrænum hætti.“ 

Spennandi að spá í framtíðina 

Hvernig heldurðu að Vörður muni líta út árið 2046 þegar félagið fagnar fertugsafmælinu? 

„Tryggingavernd snýst að miklu leyti um að lesa í samfélagið. Hvernig lítur það út í dag og hvert stefnir það? Í dag eru þarfirnar allt aðrar en þegar allt snerist um bátana árið 1926 – og þær verða sömuleiðis orðnar allt aðrar árið 2046 en þær eru í dag árið 2026.“ 

Tækni og framfarir í læknavísindum gætu til dæmis haft mikil áhrif á tryggingar framtíðarinnar. Sjálfkeyrandi bílar gætu breytt eðli ökutækjatrygginga og öflugri rannsóknir og forvarnir gætu gert heilbrigðiskerfinu kleift að greina sjúkdóma mun fyrr en nú. 

„Við getum velt fyrir okkur hvernig samfélagið muni líta út árið 2046 og hverjar þarfir fólks verða. En gunnhugmyndin verður þó sú sama: Fólk getur orðið fyrir tjóni og þarf að geta fengið það bætt. Við þurfum alltaf að móta þjónustuna eftir því hvernig heimurinn er og hvert hann stefnir,“ segir Guðbjörg Heiða að lokum. 

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
27. nóvember 2026

Vörður tvítugur: „Tryggingavernd snýst um að lesa í samfélagið“

Við gripum Guðbjörgu Heiðu, forstjóra Varðar, í stuttan kaffibolla í tilefni 20 ára afmælis Varðar nú í nóvember 2026. Síðustu ár hafa verið viðburðarík hjá Verði og það stendur ekki á svörum forstjórans þegar við innum hana eftir því hvað standi upp:  

„Fyrst og fremst þær frábæru viðtökur sem félagið hefur fengið, en á þessum tuttugu árum höfum við farið úr því að vera með um 6% markaðshlutdeild í 19% og þjónustum nú yfir 70.000 viðskiptavini. Það er árangur sem við megum svo sannarlega vera stolt af og fagna á þessum tímamótum.“ 

Lesa meira
13. nóvember 2026

Truflun á tölvupóstþjónustu

Vegna tæknilegra truflana í þjónustu sem við nýtum hjá Microsoft eigum við í tímabundnum vandræðum með tölvupóstþjónustuna okkar. Truflanirnar kunna einnig að hafa áhrif á aðra þjónustu og kerfi. Áhrifin á tölvupóstþjónustuna felast meðal annars í því að ekki er tryggt að allir tölvupóstar berist til okkar eða skili sér frá okkur til viðtakenda.

Ef þú þarft að tilkynna tjón þá hvetjum við ykkur til að hafa samband við okkur símleiðis til að fylgja beiðninni eftir. Síminn er 514 1000.

Við fylgjumst grannt með stöðunni og vinnum að því að lágmarka áhrif truflananna. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Lesa meira
4. nóvember 2026

Er mynstrið þitt nægi­lega djúpt?

Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð