Tjón
Tjón

07.10.2026

Er skynjari á vaktinni í bú­staðn­um?

Að koma að eign sinni á floti er lífsreynsla sem við óskum engum. Leki sem er ekki stöðvaður í tæka tíð getur valdið mjög miklum skaða, ónýtum gólfefnum, vatnsmettuðum innréttingum og veggjum. Vatnstjón í sumarhúsum eru allt of algeng og hjá Verði tryggingum skipta þau tugum á ári. Við það veðurfar sem við búum við hér á landi geta auðveldlega skapast aðstæður sem valda vatnstjónum. En sem betur fer er hægt að koma í veg fyrir þau eða a.m.k. takmarka skaðann með einföldum forvörnum. Á haustin þegar heimsóknum í bústaðinn fer fækkandi hjá flestum er mikilvægt að sumarhúsaeigendur kynni sér allar þær leiðir sem færar eru til þess að reyna að koma í veg fyrir alvarleg tjón.

Að fá viðvörun strax skiptir máli

Munurinn á litlu vatnstjóni og stóru vatnstjóni ræðst af því hversu fljótt leki uppgötvast. Þegar fólk fær viðvörun um leka getur það brugðist strax við, skrúfað fyrir vatnið eða fengið einhvern til að fara á staðinn. Þá getur tjónið takmarkast við eitt herbergi eða afmarkað svæði í stað þess að ná að skemma allt húsnæðið. Þetta er einmitt meginástæðan fyrir því að vatnsskynjarar hafa notið aukinna vinsælda á síðustu árum. Því miður eru allmörg dæmi síðastliðin ár þar sem vatn hefur lekið dögum saman án þess að gripið væri inn í. Í sumum þessara húsa varð altjón.

Hvernig virkar vatnsskynjari?

Vatnsskynjarinn er lítill skynjari með rafhlöðu eins og reykskynjari en hann er líka tengdur netinu og sendir boð í app í símann ef hann verður var við leka. Skynjarinn nemur bleytu strax og er snöggur að senda boð í símann þinn. Mörg rafvöru- og öryggisfyrirtæki selja vatnsskynjara og þeir kosta á bilinu 3.000-10.000 krónur. Hægt er að kaupa þá staka eða sem hluta af stærri öryggispakka, allt eftir því hvað hentar. Best er að staðsetja vatnsskynjarann við botn sökkuls eða á gólfi. Algengt er að staðsetja vatnsskynjara nálægt vaskaskáp, uppþvottavél, þvottavél og lagnagrind, sérstaklega ef vatnið hefur enga undankomuleið ef það byrjar að leka. Það getur því margborgað sig að hafa þennan litla vatnsskynjara á vaktinni þegar bústaðurinn er mannlaus.

Aðrar vetrarforvarnir sumarhúsaeigenda

Á veturna er mikilvægt að skrúfa fyrir inntök heita og kalda vatnsins og tæma viðtengd tæki þegar sumarhúsið er yfirgefið. Þetta á sérstaklega við ef harður frostakafli er í veðurkortunum. Ef húsið er hitað með miðstöðvarofnum er öruggast að hafa lokað hringrásarkerfi með frostlegi og forhitara. Ef margir eru að nota bústaðinn er mikilvægt að hafa góðar leiðbeiningar um frágang hússins og merkingar á lögnum og lagnagrind. Ekki er sjálfgefið að allir kunni til verka eða þekki lagnakerfi sumarhússins. Frostlögur í salerni og vaska getur bjargað miklu ef vatn situr eftir í vatnslásum eða ekki tekst að tæma kerfi fullkomlega. Vatnsskynjari í sumarhúsið er kjörið öryggistæki ef þar er þráðlaust netsamband.

Nú í byrjun október er því ekki eftir neinu að bíða. Gangið vel frá sumarhúsinu fyrir veturinn og skoðið hvaða möguleikar eru í boði með vöktunar- og öryggislausnum. Vatnsskynjarinn er ódýr og nettur en getur komið í veg fyrir mikið tjón.

 

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
13. nóvember 2026

Truflun á tölvupóstþjónustu

Vegna tæknilegra truflana í þjónustu sem við nýtum hjá Microsoft eigum við í tímabundnum vandræðum með tölvupóstþjónustuna okkar. Truflanirnar kunna einnig að hafa áhrif á aðra þjónustu og kerfi. Áhrifin á tölvupóstþjónustuna felast meðal annars í því að ekki er tryggt að allir tölvupóstar berist til okkar eða skili sér frá okkur til viðtakenda.

Ef þú þarft að tilkynna tjón þá hvetjum við ykkur til að hafa samband við okkur símleiðis til að fylgja beiðninni eftir. Síminn er 514 1000.

Við fylgjumst grannt með stöðunni og vinnum að því að lágmarka áhrif truflananna. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Lesa meira
4. nóvember 2026

Er mynstrið þitt nægi­lega djúpt?

Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum.

Lesa meira
2. nóvember 2026

Vörður og Arion styrkja Reykjalund um þrjár milljónir

Við hjá Verði og Arion banka erum stolt af því að starfa með fjölmörgum framúrskarandi fyrirtækjum um land allt. Í tilefni af viðurkenningu þeirra höfum við á undanförnum árum stutt við mikilvæg samfélagsverkefni í þeirra nafni.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð