02.11.2026
Vörður og Arion styrkja Reykjalund um þrjár milljónir
Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann.
Við hjá Verði og Arion banka erum stolt af því að starfa með fjölmörgum framúrskarandi fyrirtækjum um land allt. Í tilefni af viðurkenningu þeirra höfum við á undanförnum árum stutt við mikilvæg samfélagsverkefni í þeirra nafni.
Í ár höfum við ákveðið að leggja þrjár milljónir króna til frekari uppbyggingar Reykjalundar í nafni framúrskarandi fyrirtækja.
Reykjalundur er stærsta endurhæfingarmiðstöð landsins og gegnir lykilhlutverki í íslensku heilbrigðiskerfi. Þar njóta á annað þúsund einstaklingar endurhæfingar á hverju ári með það að markmiði að endurheimta heilsu, færni og starfsgetu eftir veikindi eða áföll. Húsnæðið er hins vegar víða komið til ára sinna og mikil þörf er á uppbyggingu og endurbótum til að tryggja að starfsemin geti áfram sinnt mikilvægu hlutverki sínu.
Framlagið verður nýtt til uppbyggingarverkefna á Reykjalundi, en Hollvinir Reykjalundar stóðu nýlega, ásamt RÚV, fyrir landssöfnun til stuðnings verkefninu. Meðal annars er safnað fyrir endurbótum og endurbyggingu á aðstöðu sem nýtist sjúklingum og starfsfólki daglega.
„Við hjá Verði viljum hafa raunveruleg og jákvæð áhrif á samfélagið okkar. Á Reykjalundi er unnið mikilvægt starf við að hjálpa fólki að ná aftur heilsu og færni eftir veikindi og áföll. Það á því einstaklega vel við að fagna árangri framúrskarandi fyrirtækja með því að styðja þessa mikilvægu starfsemi og við erum stolt af því að leggja okkar af mörkum,“ segir Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar.
Við óskum öllum þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu Creditinfo í ár innilega til hamingju með árangurinn. Um leið þökkum við starfsfólki Reykjalundar fyrir framlag sitt í áranna rás.