Tjón
Tjón

23.10.2026

Vörður aðal­bak­hjarl Körfuknatt­leiks­deild­ar Hatt­ar

Vörður tryggingar og Körfuknattleiksdeild Hattar hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning. Samkvæmt samningnum verður Vörður aðalbakhjarl deildarinnar og mun heimavöllur Hattar jafnframt bera nafnið Varðarhöllin.

Með samstarfinu styður Vörður við öflugt starf í öllum aldurshópum, allt frá yngstu iðkendum til meistaraflokka. Nýja samstarfið er liður í þeirri vegferð Varðar að styðja íþrótta- og samfélagsstarf í nærumhverfi sínu. Samstarfið felur meðal annars í sér að merki Varðar verður á keppnisbúningum allra flokka Körfuknattleiksdeildar Hattar. Vörður hefur verið að efla starfsemi sína á Austurlandi og opnaði nýtt útibú á Egilsstöðum fyrir tveimur árum. 

Spennandi tímabil er fram undan hjá Hetti, því karlalið Hattar vann sér sæti í Bónusdeildinni á síðasta tímabili. 

Heimavöllur Hattar, sem er í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum, fær nýtt nafn og mun framvegis kallast Varðarhöllin. Nýja nafnið verður sýnilegt í tengslum við heimaleiki og aðra körfuboltaviðburði Hattar og markar nýjan kafla í samstarfi íþróttahreyfingarinnar og atvinnulífsins á svæðinu.

„Við erum stolt af því að ganga til liðs við Körfuknattleiksdeild Hattar sem aðalbakhjarl næstu þrjú árin. Starfið hjá Hetti er öflugt og mikilvægt fyrir samfélagið á Austurlandi og við hlökkum til að fylgja félaginu eftir á komandi árum,“ segir Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar.

„Samningurinn skiptir Körfuknattleiksdeild Hattar miklu máli og styrkir forsendur okkar til að halda áfram að byggja upp metnaðarfullt starf fyrir iðkendur á öllum aldri. Það er mikils virði að finna fyrir þessum stuðningi frá öflugu fyrirtæki sem vill leggja sitt af mörkum til samfélagsins,“ segir Ásthildur Jónasdóttir, formaður körfuboltadeildar Hattar.

Fyrsti viðburðurinn undir merkjum nýja samstarfsins var haldinn 22. október í tengslum við fyrsta heimaleik tímabilsins en þar mættust Höttur og ÍR í karladeildinni. 

Í hálfleik var gestum boðið að taka þátt í skotleik þar sem hægt var að vinna veglegt gjafakort frá versluninni Vaski á Egilsstöðum. 

Samningurinn var undirritaður af Guðbjörgu Heiðu Guðmundsdóttur, forstjóra Varðar og Ásthildi Jónasdóttur, formanni körfuboltadeildar Hattar.

 

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
23. október 2026

Vörður aðalbakhjarl Körfuknattleiksdeildar Hattar

Vörður tryggingar og Körfuknattleiksdeild Hattar hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning. Samkvæmt samningnum verður Vörður aðalbakhjarl deildarinnar og mun heimavöllur Hattar jafnframt bera nafnið Varðarhöllin.

Lesa meira
12. október 2026

Vel sóttur netöryggisviðburður

Vörður hélt vel sóttan netöryggisviðburð þann 8. október síðastliðinn. Fulltrúar fjölda fyrirtækja hlýddu á erindi og tóku þátt í líflegum samræðum.

Lesa meira
7. október 2026

Er skynjari á vaktinni í bú­staðnum?

Að koma að eign sinni á floti er lífsreynsla sem við óskum engum. Leki sem er ekki stöðvaður í tæka tíð getur valdið mjög miklum skaða, ónýtum gólfefnum, vatnsmettuðum innréttingum og veggjum.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð