Tjón
Tjón
Reykskynjari

Hugum að reyk­skynj­ur­um

Alþjóðlegur dagur reykskynjarans er 1. desember ár hvert. Reykskynjarar eru ódýr öryggistæki sem geta bjargað mannslífum – en aðeins ef þeir eru til staðar, á réttum stöðum og ef þeir virka. Af því tilefni hvetjum við alla til að huga að eldvörnum á heimilum sínum.

Mismunandi tegundir reykskynjara

Til eru tvær megingerðir af reykskynjurum: Optískir skynjarar sem skynja vel glóðarbruna og jónískir skynjarar sem skynja vel reyk með litlum ögnum, til dæmis opinn eld. Einnig eru til aðrir skynjarar sem sameina eiginleika beggja

Óháð gerð reykskynjara, er lykilatriði fyrir öryggi heimilisins að hafa nægjanlega fjölda virkra reykskynjara á réttum stöðum. Til að virkni reykskynjara sé sem best getur þurft að hafa blöndu af jónískum og optískum skynjurum. Dæmi um staðsetningar eru:

  • Eldhús: Velja skal optískan reykskynjara í eldhúsið.

  • Svefnherbergi: Ef raftæki eins og sjónvarp, hljómflutningstæki og tölva eru í svefnherberginu, ætti að vera optískur reykskynjari þar, en annars jónískur.

  • Stofa: Ef sjónvarp og önnur raftæki eru í stofunni ætti að vera optískur reykskynjari.

  • Alrými: Í alrými er gott að hafa bæði optískan og jónískan reykskynjara.

  • Á gangi og við stigaop:Þar eru jónískir reykskynjarar æskilegir.

  • Þvottahúsið: Í þvottahúsið setjum við optískan reykskynjara þar sem jónískur getur gefið frá sér falsboð vegna gufu sem myndast við þvott.

  • Við rafmagnstöflu:Setjið optískan reykskynjara nálægt rafmagnstöflur.

  • Bílskúr:Sé bíll geymdur í bílskúr er hætt við að útblástursreykur geti sett reykskynjara af stað. Í slíkum tilvikum er rétt að nota hitaskynjara.

Staðsetning reykskynjara

Unnt er að tengja marga reykskynjara saman. Það er æskilegt í stórum húsum því þá gera allir skynjarar viðvart um leið og einn fer í gang. Samtengdir skynjarar eru ýmist þráðlausir eða tengdir saman með vír. Einnig er hægt að vera með vaktað brunaviðvörunarkerfi.

  • Æskilegt er að setja reykskynjara í öll svefnherbergi.

  • Sé húsið fleiri en ein hæð, setjið reykskynjara á allar hæðir.

  • Reykskynjara ber að staðsetja í lofti, ekki nær vegg en 50 sentímetra.

  • Setjið reykskynjara sem næst miðju lofts og aldrei nær vegg eða ljósi en sem nemur 30 sentímetrum.

  • Best er að hafa reykskynjara í öllum rýmum.

  • Í langan gang skal setja skynjara við báða enda.

  • Skynjari á að vera í bílskúr. Sé hann sambyggður íbúðarhúsi er best að tengja skynjarann þar við reykskynjara í íbúðinni.

Viðhald og endurnýjun

Til að prófa reykskynjara, styðjið fingri á prófunarhnappinn þar til viðvörunarmerki heyrist. Gott er að leyfa heimilisfólkinu að heyra hljóðið í skynjaranum.

  • Prófið reykskynjarann fjórum sinnum á ári (t.d. 1. desember, um páska, fyrir sumarleyfi og við skólabyrjun).

  • Skiptið um rafhlöðu árlega.

  • Líftími skynjara er um 10 ár – Gott er að skrá á bakhlið skynjarans hvaða ár hann var settur upp.

  • Ryksugið skynjara að innan þegar skipt er um rafhlöðu.

  • Prófið reykskynjara alltaf þegar komið er í sumarhús, einkum ef það hefur ekki verið notað lengi.

  • Ef stutt hljóðmerki heyrist frá skynjaranum á um það bil mínútu fresti þarf að endurnýja rafhlöðuna.

  • Nauðsynlegt er að prófa reykskynjarann þegar skipt hefur verið um rafhlöðu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
istockphoto-2157944183-1024x1024

Ertu eld­klár í sumar­bú­staðnum?

Sumarhús eru griðastaður til þess að slaka á í frístundum og þó margir nýti bústaðinn allt árið um kring er sumarið sá tími sem flestir dvelja þar lengst.

Lesa meira
Verktaki á byggingarsvæði

Forvarnir eru forsenda árangurs

Í sífellt flóknara rekstrarumhverfi nútímans er ekki lengur nægjanlegt fyrir fyrirtæki að bregðast við vandamálum eftir að þau hafa komið upp. Árangursrík fyrirtæki byggja á forvörnum og sterkri öryggismenningu sem dregur úr eða útilokar áhættu, áður en hún verður að tjóni. Slík nálgun er ekki aðeins siðferðilega rétt heldur einnig fjárhagslega skynsamleg.

Lesa meira
Innbú

Læknisþjónusta á ferðalögum

Vörður varar við læknastofunni Clinic Diamond á Kanarí vegna svikamála sem komið hafa upp í tengslum við stofuna. Starfsfólk á vegum stofunnar hefur bæði of meðhöndlað fólk og rukkað það svo himinháar upphæðir í kjölfarið.

Lesa meira
Fá tilboðTilkynna tjón