
Námsmaðurinn
Meiri vernd, minna vesen - einfaldur, hagkvæmur og öruggur Heilsupakki fyrir ungt fólk
Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.

Meiri vernd, minna vesen - einfaldur, hagkvæmur og öruggur Heilsupakki fyrir ungt fólk
Pakkinn veitir fjárhagslegt öryggi þegar lífið tekur óvænta stefnu.
Hér má finna helstu upplýsingar um Heilsupakkann
Hannað fyrir ungt fólk í námi sem vill gott öryggisnet án þess að það kosti of mikið.
Líftrygging 1.000.000 kr.
Sjúkdómatrygging 3.000.000 kr.
Örorkutrygging 6.000.000 kr.
Arion framtíð - 950 kr. á mánuði
Almennt verð - 1.156 kr. á mánuði

Það margborgar sig að vera rétt tryggður ef eitthvað kemur upp á. Þú tryggir þig nefnilega ekki eftir á.
Líftrygging er eins og öryggisnet fyrir fólkið sem þú elskar – ef eitthvað kemur fyrir þig þurfa þau í það minnsta ekki að hafa áhyggjur af fjármálunum.

Við getum öll lent í því að veikjast. Sjúkdómatrygging tryggir að þú getir náð þér á strik án þess að hafa fjárhagsáhyggjur.

Ef slys eða veikindi koma í veg fyrir að þú getir unnið tryggir örorkutrygging að þú hafir enn tekjur til að lifa lífinu.


Arion framtíð er fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 23 ára sem vill meira frelsi, fleiri fríðindi og lausnir sem styðja við markmið þess.
Það er alls konar skemmtilegt í boði, t.d. launabónus og frítt Hopp í sumar og svo bjóðum við upp á fjármálafræðslu fyrir ungt fólk.
Námsmaðurinn kostar 950 kr. á mánuði ef þú ert í Arion framtíð. Almennt verð er 1.156 kr. á mánuði.
Líf-, sjúkdóma- og örorkutrygging hjá Verði.
Líftrygging 1.000.000 kr. → ef þú fellur frá.
Sjúkdómatrygging 3.000.000 kr. → ef þú greinist með alvarlegan sjúkdóm.
Örorkutrygging 6.000.000 kr. → ef þú missir starfsgetu vegna veikinda eða slysa.
Eitt mánaðarverð og pakkinn veitir fjárhagslegt öryggi þegar lífið tekur óvænta stefnu.
Í gegnum Arion appið, hér.
Já. Ef foreldri vill greiða fyrir Heilsupakkann má hafa samband við Vörð í síma 514 1000, tilgreina fyrir hvern er greitt og um hvaða tryggingu er að ræða. Foreldrið er þá orðið greiðandi að Heilsupakkanum.
Það er einmitt ástæðan fyrir því að þú klárar málið núna – vegna þess að þú ert ung/ur. Tryggingar eru ódýrastar og einfaldastar áður en eitthvað kemur upp á. Því miður gerast óvæntir hlutir líka þegar maður er ungur. Heilsupakkinn tryggir að þú sért með fjárhagslegt öryggisnet ef eitthvað gerist.
Því fyrr, því betra. Þú tryggir þig ekki eftir á.
Því yngri og heilbrigðari sem þú ert, þeim mun lægri eru iðgjöldin.