Leigutrygging Leiguskjóls
Leigutrygging er trygging sem er ætluð leigusölum í tiltekinni þjónustuleið hjá Leiguskjóli og bætir tjón sem leigjandiveldur á leiguhúsnæði.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Leigutrygging er trygging sem er ætluð leigusölum í tiltekinni þjónustuleið hjá Leiguskjóli og bætir tjón sem leigjandiveldur á leiguhúsnæði.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur meira skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Tjón á leigðu húsnæði sem leigutaki ber ábyrgð á við skil þess og er umfram eðlileg not á hinni leigðu eign.
Tjón á leigðu húsnæði sem leigutaki ber ábyrgð á við skil þess og rakið er til athafnar eða athafnaleysis leigutaka.
Tryggingin bætir ekki tjón sem verða á fyrstu 15 dögum leigutímabils.
Tryggingin bætir ekki tjón sem verður á innbúi í eigu vátryggðs í hinu leigða húsnæði.
Tryggingin bætir ekki tjón sem verða á hinu leigða húsnæði og bótaskylt er úr öðrum almennum húseigendatryggingum.
Tryggingin bætir ekki tjón sem verður á innbúi í eigu leigusala eða í hinu leigða húsnæði.
Tryggingin bætir ekki tjón sem tilkynnt er meira en fjórum vikum eftir skil hins leigða húsnæðis.
Tryggingin bætir ekki skemmdir sem verða vegna skorts á eðlilegu viðhaldi á eigninni og vátryggður leigusali ber ábyrgð á.