Ábyrgðatrygging atvinnurekstrar
Veitir atvinnurekanda tryggingavernd sem kann að hljótast vegna slysa á fólki eða tjóns á munum. Hægt er að kaupa sérskilmála sem veita víðtækari vernd fyrir tiltekinn rekstur.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Veitir atvinnurekanda tryggingavernd sem kann að hljótast vegna slysa á fólki eða tjóns á munum. Hægt er að kaupa sérskilmála sem veita víðtækari vernd fyrir tiltekinn rekstur.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Tryggingin bætir líkamstjón og munatjón sem tryggður ber skaðabótaábyrgð á samkvæmt íslenskum lögum utan samninga og kemur til vegna þeirrar starfsemi sem tilgreint er á skírteini tryggingarinnar.
Tryggingin tekur einnig til líkamstjóns eða munatjóns vegna skaðabótaábyrgðar sem fellur á tryggðan sem eiganda eða notanda húsnæðis eða fasteignar, sem notuð er við tilgreinda starfsemi enda sé hún tilgreind á skírteini.
Tryggingin bætir tjón að því leyti sem tjónþoli á ekki að bera tjónið sjálfur vegna meðsakar eða meðábyrgðar. Skilyrði fyrir skaðabótaábyrgð samkvæmt þessu ákvæði er að líkams- og/eða munatjón verði rakið til skyndilegs og óvænts atburðar.
Undanskildar áhættur sem hægt er að tryggja sérstaklega með sérskilmála
Skaðabótakröfu vegna tjóns á munum sem tryggður tekur að sér að gera við, hreinsa, setja upp eða vinna við með einum eða öðrum hætti.
Skaðabótakröfu vegna skráningaskyldra eða óskráningarskyldra ökutækis, loftfars, skips, báts eða vinnuvéla.Skaðabótakröfu vegna sprengingar eða framkvæmdir í jörðu.
Skaðabótakröfu vegna tjóns á munum sem tryggður hefur að láni, leigu, til geymslu, til sölu, flutnings, vöruafgreiðslu, hífingar eða af öðrum ástæðum í vörslu hans.
Skaðabótakröfu vegna tjóns á munum sem tryggður á einn eða með öðrum.Skaðabótakröfu vegna dýralækna, fiskeldisstöðva, alifuglabúa, loðdýrabúa, svínabúa og vegristar.
Skaðabótakröfu vegna alferða, pakkaferða eða samtengda ferðatilhögun.Tjón sem leiðar af skaðsemisábyrgðar vegna ágalla eða íblöndunar vöru.
Tjón innan samninga.
Tjón sem hlýst af því að söluvara berst viðtakanda ekki, eða ekki í tæka tíð eða greiðsla er ekki innt af hendi á réttum tíma.Tjón sem stafar af efninu asbest (asbestos) eða efnis sem inniheldur asbest að einhverju leiti.
Tjón sem stafar af hvers kyns perflúor (PFAS) efnum og efnasamböndum hvort sem unnið er með slík efni eða vöru sem innihalda þau.
Tjón sem stafar af hvers kyns áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands hvoru tveggja.
Tjón sem stafar af umsjón eða ráðgjöf um áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands hvoru tveggja.
Tjón sem starfsábyrgðartrygging tekur til hvort sem hún er fyrir hendi eða ekki.
Tjón sem hljótast af eldsvoða, kjarnorku eða geislavirkum efnum.
Tjón af völdum hryðjuverka.
Tjón vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar, þ.m.t. sýkla og veira.
Tjón sem rekja má til loftfars eða er afleiðing notkunar þess, eiga rót sína að rekja til áfyllingar flugeldsneytis eða verða vegna reksturs flugvalla.
Tjón vegna sekta eða annarra refsiviðurlaga.
Tjóna sem rakin verða til mengunar lofts, jarðar, gróðurs, vatns eða sjávar.
Félagið greiðir þó bætur vegna slíks tjóns, ef það verður rakið til eins skyndilegs og óvænts atburðar og því verði ekki um kennt, að tryggður hafi með ásetningi eða stórfelldu gáleysi látið hjá líða að fara eftir opinberum fyrirmælum, sem gilda.
Tjón vegna endurkröfu frá almannatryggingum.
Tjón vegna skaðabótakrafna sem eiga rót sína að rekja til reksturs jarðganga eða neðansjávarvinnu eða þess að stíflumannvirki bresta.
Undanskildar áhættur sem hægt er að tryggja sérstaklega með sérskilmála
Hjá okkur starfar teymi sérfræðinga með yfirgripsmikla þekkingu á tryggingum og langa reynslu af því að greina þarfir fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum.










Það er mikilvægt að hafa réttar tryggingar fyrir fyrirtækið, hvort sem það á við um starfsfólkið þitt, starfsemina eða búnaðinn.
Við vinnum náið með fyrirtækjum okkar og pössum upp á það með þeim að tryggingarnar endurspegli þarfir rekstrarins á hverjum tíma. Það gerum við með því að skilja þarfir þeirra, vera til staðar og auðvelda þeim tryggingaviðskipti.