Ábyrgðartrygging farsala og flutningsaðila
Ábyrgðartrygging farsala og flutningsaðila er ætlað að tryggja fyrirtæki sem sinna farþegaflutningum með skipum fyrir skaðabótaábyrgð sem á þau kunna að falla í samræmi við ákvæði siglingalaga.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Ábyrgðartrygging farsala og flutningsaðila er ætlað að tryggja fyrirtæki sem sinna farþegaflutningum með skipum fyrir skaðabótaábyrgð sem á þau kunna að falla í samræmi við ákvæði siglingalaga.

Tryggingamál getur verið flókið – en það þarf ekki að vera þannig. Til að gera þetta einfaldara og skýrara höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem þú getur skoðað samhliða skilmálunum.
Skaðabótaábyrgð sem fellur á vátryggðan vegna þess að farþegi slasast eða lætur lífið á meðan á ferð stendur.
Skaðabótaábyrgð sem fellur á vátryggðan vegna þess að farangur týnist eða skemmist á meðan á ferð stendur.
Skaðabótaábyrgð sem fellur á vátryggðan vegna tjóns sem stafar af vanrækslu í starfi hjá skipstjóra eða öðrum sem starfa í þágu skips.
Skaðabótaábyrgð sem fellur á vátryggðan sem stafar af seinkun í sambandi við flutning á farþega eða farangri.
Tjón sem farsali eða flutningsaðili tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans sem farsala eða flutningsaðila.
Sektir eða önnur viðurlög.
Tjón sem verður áður en farþegi stígur á skipsfjöl og eftir að hann stígur frá borði.
Tjón sem annar aðili en vátryggður, er annast hluta flutnings samkvæmt farsamningi, ber ábyrgð á.
Tjón á lifandi dýrum sem flutt eru sem farangur.
Hjá okkur starfar teymi sérfræðinga með yfirgripsmikla þekkingu á tryggingum og langa reynslu af því að greina þarfir fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum.










Það er mikilvægt að hafa réttar tryggingar fyrir fyrirtækið, hvort sem það á við um starfsfólkið þitt, starfsemina eða búnaðinn.
Við vinnum náið með fyrirtækjum okkar og pössum upp á það með þeim að tryggingarnar endurspegli þarfir rekstrarins á hverjum tíma. Það gerum við með því að skilja þarfir þeirra, vera til staðar og auðvelda þeim tryggingaviðskipti.