Starfsábyrgðartrygging verkfræðinga, tæknifræðinga og arkitekta
Starfsábyrgðartryggingar hafa þann tilgang að bæta almennt fjártjón sem tryggður kann að valda viðskiptavinum sínum við störf sín. Verkfræðingar, tæknifræðingar og arkitektar geta keypt starfsábyrgðartryggingu vegna starfa sinna en ef starfið felur í sér hönnun aðal- eða séruppdrátta er skylt samkvæmt lögum að kaupa og viðhalda slíkri tryggingu.
