Netárásum fjölgar ört hér á landi og eru þær orðnar ein alvarlegasta ógn sem fyrirtæki standa frammi fyrir í dag. Á netinu skipta hvorki tími dags, tungumál né landamæri máli – árásaraðilar geta brotist inn í kerfi fyrirtækja, stolið gögnum, lamað starfsemi og ógnað bæði rekstri og viðskiptavinum.
Fyrstu mínútur eftir netárás geta skipt sköpum. Skjót og rétt viðbrögð geta dregið verulega úr tjóni og hjálpað fyrirtækjum að koma rekstri aftur í eðlilegt horf.
Tryggingin er mikilvægur þáttur í áhættustýringu fyrirtækja en kemur ekki í stað tæknilegra varna, öryggisvöktunar eða markvissrar netöryggisstjórnunar.