Spennandi starf í Skaðatryggingum

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum

Við leitum að umbótasinnuðum og lausnamiðuðum sérfræðingi til að styrkja teymi Skaðatrygginga hjá Verði. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem snúa meðal annars að þjónustu við framlínu, áhættumati og umsjón með endurnýjunum trygginga. Um er að ræða spennandi starf í öflugu teymi.
Helstu verkefni
Umsjón og eftirfylgni með endurnýjunum trygginga
Áhættumat
Stuðningur við þjónustu- og sölueiningar Varðar
Þátttaka í umbótaverkefnum og þróun ferla
Hæfniskröfur
Menntun eða haldbær starfsreynsla sem nýtist í starfi, reynsla af tryggingum er kostur
Þjónustulund og góð samskiptafærni
Lausnamiðaður hugsunarháttur og aðlögunarhæfni í fjölbreyttu starfi
Frumkvæði og umbótahugsun
Góð færni í íslensku og ensku
Nánari upplýsingar um starfið veita Friðrik Bragason forstöðumaður skaðatrygginga, netfang: fridrik.bragason@vordur.is og Thelma Lind Steingrímsdóttir, mannauðsráðgjafi, netfang: thelma.steingrimsdottir@arionbanki.is
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2026
Vörður er ört stækkandi tryggingafélag með höfuðstöðvar sínar í Arion banka.
Hlutverk Arion samstæðunnar er að vinna að markmiðum viðskiptavina, eigenda, starfsfólks og samfélagsins alls. Við bjóðum snjallar og traustar fjármálalausnir sem skapa viðskiptavinum, hluthöfum og samfélaginu öllu verðmæti til framtíðar. Starfsfólk samstæðunnar er fjölbreyttur hópur fólks sem á það sameiginlegt að hafa metnað fyrir störfum sínum. Við leggjum okkur fram við að byggja upp vinnustað þar sem kunnátta, þekking og færni fær að njóta sín og starfsánægja er mikil. Við virðum mannréttindi og jafnrétti í allri okkar starfsemi og leggjum kapp á að starfa í sátt við samfélagið og umhverfið. Þinn árangur er það sem við stefnum að.
Upplýsingar um persónuvernd fyrir umsækjendur: Persónuvernd fyrir umsækjendur - Vörður