Kaskótrygging eftirvagna
Sérsniðin trygging fyrir eftirvagna aðra en ferðavagna, þ.e. aðra vagna en hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna og ferðapallhýsi (e. camper).

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Sérsniðin trygging fyrir eftirvagna aðra en ferðavagna, þ.e. aðra vagna en hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna og ferðapallhýsi (e. camper).

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Tjón vegna áreksturs, áaksturs eða útafaksturs þess ökutækis sem dregur eftirvagninn.
Tjón vegna eldsvoða eða sprengingar sem stafar af eldsvoða. Það telst ekki eldsvoði ef eldur verður ekki laus.
Tjón vegna þjófnaðar eða tilraunar til þjófnaðar og skemmdar verka.
Tjón af völdum ofsaveðurs, skilyrði bótaskyldu er að stöðugur vindhraði hafi náð 28,5 m/sek.
Tjón af völdum aur- eða vatnsflóða, skriðufalla, snjóflóða, verkfallsaðgerða eða uppþota
Tjón sem kemur til ef sandur, möl, aska, vikur eða önnur laus jarðefni fjúka á eftirvagn.
Tjón sem kemur til vegna steinkasts af vegi eða frá ökutæki.
Ákomur á undirvagni, dekkjum eða felgum eftirvagns sem rýra ekki notagildi, jafnvel þótt ábyrgð framleiðanda falli niður við ákomu.
Tjón á undirvagni sem rekja má til aksturs á landsvegum, stofnvegum um hálendið, slóðum eða utan vega, sem og tjón sem verða við akstur yfir óbrúaðar ár, vötn eða læki.
Tjón sem rekja má til aksturs á svæðum eða vegum sem opinberir aðilar hafa varað við akstri.
Hjá okkur starfar teymi sérfræðinga með yfirgripsmikla þekkingu á tryggingum og langa reynslu af því að greina þarfir fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum.










Það er mikilvægt að hafa réttar tryggingar fyrir fyrirtækið, hvort sem það á við um starfsfólkið þitt, starfsemina eða búnaðinn.
Við vinnum náið með fyrirtækjum okkar og pössum upp á það með þeim að tryggingarnar endurspegli þarfir rekstrarins á hverjum tíma. Það gerum við með því að skilja þarfir þeirra, vera til staðar og auðvelda þeim tryggingaviðskipti.