Strandveiðatrygging
Samsett trygging fyrir þá sem stunda strandveiðar en tryggingin inniheldur bæði áhafnatryggingu og smábátatryggingu. Tryggingin gildir við strandveiðar á tímabilinu apríl til september en fyrir utan það tímabil er aðeins bætt tjón vegna bruna, óveðurs, snjóflóða, aurskriðu, innbrots og skemmdarverka.










