Dýrin
Þeir sem hafa hugsað um gæludýr vita hversu stór hluti þau verða af fjölskyldunni. Gæludýr þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi en slys og veikindi geta verið mjög kostnaðarsöm.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Þeir sem hafa hugsað um gæludýr vita hversu stór hluti þau verða af fjölskyldunni. Gæludýr þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi en slys og veikindi geta verið mjög kostnaðarsöm.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Líftrygging gæludýra
Dauða gæludýrs vegna slyss eða sjúkdóms, eða ef nauðsynlegt reynist að aflífa það.
Stuld eða tap á gæludýri sem finnst ekki innan 60 daga frá tilkynningu um hvarf.
Varanlegan heilsubrest gæludýrs.
Sjúkrakostnaður gæludýra
Réttmætan, sanngjarnan og ófyrirséðan dýralækniskostnað sem er bein afleiðing af slysum eða sjúkdómum gæludýrs.
Ábyrgðartrygging gæludýra
Skaðabótaskyldu sem fellur á vátryggðan sem eiganda vátryggðs gæludýrs vegna líkamstjóns eða skemmda á munum.
Líftrygging gæludýra
Aflífun sem rekja má til árásargirni
Atvik sem koma upp eða greind áður en vátrygging tók gildi eða sjúkdóma sem upp koma innan 30 daga frá gildistöku tryggingar.
Afbrigðilegan vöxt mjaðmaliða eða mjaðmalos.
Galla í tönnum eða biti, tannhirðu eða tannholdssjúkdóma.
Smáveirusýkingar hjá hundum.
Hundafár.
Króníska smitsjúkdóma í köttum sem ekki sýna einkenni.
Kattafár.
Arfgenga eða meðfædda sjúkdóma eða kvilla.
Aldurstengda sjúkdóma eða hrörnunarsjúkdóma.
Aflífun af öðrum orsökum en þeim sem eru bótaskyldir.
Sjúkrakostnaður gæludýra
Atvik sem komið hafa upp áður en vátrygging tók gildi.
Geðlagsvandamála eða arfgenga og/eða meðfædda kvilla.
Rannsóknir eða meðferð í forvarnarskyni, eða afbrigðilegan vöxt og afleidda sjúkdóma.
Geldingu, ófrjósemisaðgerð eða fæðingu afkvæma að undanskildum kostnaði við keisaraskurð sem talinn er læknisfræðilega nauðsynlegur.
Tannhirðu, tannviðgerðir eða tannholdssjúkdóma.
Fóður, bætiefni eða hreinlætisvörur.
Böð eða meðferð til að fyrirbyggja eða lækna afleiðingar óværu eða orma.
Fegrunaraðgerðir.
Smitandi lifrabólgu hjá hundum (HCC).
Smáveirusýkingar hjá hundum.
Hundafár.
Króníska smitsjúkdóma í köttum sem ekki sýna einkenni.
Kattafár.
Hjálpartæki eða heilsuvörur.
Vottorð eða lyfseðla nema félagið óski þeirra.
Aukaálag á lækniskostnaði vegna vitjunar utan vinnutíma nema brýna nauðsyn hafi borið til.
Flutninga í tengslum við læknisvitjun eða innlögn.
Naflakviðslit, launeista eða hnykk í skotti.
Ský á augasteini.
Segulómskoðun eða sneiðmyndatöku.
Ábyrgðartrygging gæludýra
Tjón sem fjölskylda eða skyldmenni á heimili vátryggingartaka verður fyrir.
Tjón á munum sem framangreindir aðilar hafa að láni, til leigu, til geymslu eða í vörslu sinni.
Tjón sem rekja má til þess að ekki er fylgt lögum og reglum um lausagöngu dýra eða merkinga þeirra.
Fyrst þú ert að kynna þér líf- og heilsutryggingar þá gætir þú jafnframt haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Styður við fjölskyldur komi til andláts og eykur þannig lífsgæði og fjárhagslegt öryggi þeirra sem eftir standa.

Tryggir fjárhagslegt öryggi einstaklinga og fjölskyldna komi til alvarlegra veikinda.

Heimilisvernd er samsett trygging fyrir fjölskylduna og innbúið. Hægt er að velja um fjórar mismunandi tryggingar allt eftir þínum þörfum.