Áhafnatrygging skipa – Skaðabótalög
Tryggingin greiðir bætur vegna slysa sem áhöfn verður fyrir um borð í skipi eða bát við vinnu í beinum tengslum við rekstur útgerðar. Til viðbótar er valkvæð slysatrygging í frítíma sem hægt er að velja með og án dagpeninga gegn viðbótariðgjaldi. Tryggingin nær einnig til farangurs áhafnar og við andlát vegna veikinda eru greiddar bætur til rétthafa. Bætur greiðast á grundvelli skaðabótalaga nr. 50/1993 ef það leiðir til hærri heildarbóta en skv. 172. gr. siglingalaga nr. 37/1985.










