Áhafnatrygging smábáta – siglingalög
Tryggingin greiðir bætur vegna slysa sem áhöfn verður fyrir um borð í skipi eða bát við vinnu í beinum tengslum við rekstur útgerðar. Til viðbótar er valkvæð slysatrygging í frítíma sem hægt er að velja með og án dagpeninga gegn viðbótariðgjaldi. Tryggingin nær einnig til farangurs áhafnar og við andlát vegna veikinda eru greiddar bætur til rétthafa. Bætur greiðast skv. 172. gr. siglingalaga nr. 37/1985.










