Brunatrygging húseigna
Brunatrygging húseigna er lögboðin trygging sem bætir tjón á fasteign af völdum eldsvoða. Tryggingarfjárhæð miðast við brunabótamat sem Fasteignamat ríkisins ákveður.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Brunatrygging húseigna er lögboðin trygging sem bætir tjón á fasteign af völdum eldsvoða. Tryggingarfjárhæð miðast við brunabótamat sem Fasteignamat ríkisins ákveður.

Tryggingamál getur verið flókið – en það þarf ekki að vera þannig. Til að gera þetta einfaldara og skýrara höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem þú getur skoðað samhliða skilmálunum.
Tjón vegna eldsvoða, eldinga, sótfalls eða sprenginga svo sem gassprenginga við eldunartæki.
Tjón á öllum föstum innréttingum svo sem eldhús- og baðinnréttingum.
Tjón á gólfefnum.
Tjón á skjólveggjum og pöllum.
Tjón á eldavélum
Kostnað við það að hreinsa og ryðja burt brunarústum.
Kostnað tengdan björgunar- og slökkvistarfi.
Óbeint tjón, svo sem rekstrartap eða missir húsaleigutekna.
Kostnað vegna hreinsunar úrgangs- eða eiturefna í umhverfi eða jarðvegi vegna bótaskyldu tjónsatburðar.
Hjá okkur starfar teymi sérfræðinga með yfirgripsmikla þekkingu á tryggingum og langa reynslu af því að greina þarfir fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum.










Það er mikilvægt að hafa réttar tryggingar fyrir fyrirtækið, hvort sem það á við um starfsfólkið þitt, starfsemina eða búnaðinn.
Við vinnum náið með fyrirtækjum okkar og pössum upp á það með þeim að tryggingarnar endurspegli þarfir rekstrarins á hverjum tíma. Það gerum við með því að skilja þarfir þeirra, vera til staðar og auðvelda þeim tryggingaviðskipti.