Ferðatrygging fyrirtækja
Ferðatrygging fyrirtækja veitir vernd fyrir starfsfólk á ferðalögum erlendis á vegum fyrirtækisins.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Ferðatrygging fyrirtækja veitir vernd fyrir starfsfólk á ferðalögum erlendis á vegum fyrirtækisins.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Ferðasjúkra- og ferðarofstrygging
Óhjákvæmilegan kostnað sem hlýst af því að tryggður slasast, veikist eða deyr á ferðalagi erlendis s.s. sjúkrahúskostnað eða viðbótarkostnað vegna veikinda s.s. hótelkostnað.
Heimferðarkostnað, s.s. sjúkraflutningakostnað að læknisráði, breytingar á flugi og/eða sjúkraflug.
Flutning á látnum einstakling.
Viðbótarkostnað vegna heimferðar til Íslands vegna alvarlegra veikinda eða andláts nánustu ættingja.
Ferðaslysatrygging
Tímabundinn missis starfsorku vegna slysa sem verða á ferðalagi.
Varanlega læknisfræðilega örorku vegna slysa sem verða á ferðalagi.
Dánarbætur vegna slysa sem verða á ferðalagi.
Bætur vegna tannbrots sem rekja má til slyss á ferðalagi.
Farangurstrygging
Tjón á farangri af völdum bruna, ráns, flutningaslyss svo og ef farangur týnist í flutningi.
Forfallatrygging
Ferðakostnað allt að tryggingarfjárhæð, sem greiddur er fyrirfram eða samið um greiðslu á og ekki fæst endurgreiddur.
Tjón ef tryggður eða nákomnir s.s. maki, barn eða foreldrar, verða fyrir alvarlegu slysi, skyndilegum veikindum, líkamsmeiðslum eða öðrum sambærilegum atburðum sem staðfestir eru af lækni með læknisvottorði um að viðkomandi sé ekki ferðafær.
Ferðasjúkra- og ferðarofstrygging
Sjúkrakostnað sem verður á 36 viku meðgöngutíma, fæðingar eða fóstureyðingar.
Sjúkrakostnað vegna áframhaldandi læknismeðferðar.Lyfjakostnað vegna lyfja sem tryggður notar reglulega áður en ferð hófst.
Ferðaslysatrygging
Slys sem verða í keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers konar íþróttum.
Undanþága þessi á þó ekki við börn yngri en 18 ára.Slys sem verða í hnefaleikum, hvers konar glímu- og bardagaíþróttum, akstursíþróttum, bjargsigi, fjallaklifri, froskköfun, fallhlífarstökki, teygjustökki, drekaflugi og svifflugi.
Slys sem tryggður verður fyrir í handalögmáli eða við þátttöku í refsiverðum verknaði.
Brjósklos, þursabit, liðagigt, slitgigt eða aðra gigtarsjúkdóma.
Dánarbætur ef sjúkdómar, veiklun eða sjúklegt ástand vátryggðs eru meðorsakir dauða hans.
Farangurstrygging
Peninga, farmiða, ferðatékka, ávísanir, skuldabréf né önnur verðbréf.
Brothætta hluti.
Skemmdir sem hljótast af mölflugum, meindýrum, ástandi andrúmslofts, veðráttu eða eðlilegu sliti.
Skemmdir vegna vökva, matvæla eða annarra smitandi efna.
Forfallatrygging
Forföll vegna hvers kyns veikinda eða sjúkdóma sem voru til staðar áður en tryggingin var tekin eða þegar staðfestingargjald var greitt.
Forföll sem verða vegna sjúkdóma sem verða eftir 36. viku meðgöngu.
Forföll vegna meiðsla sem menn valda sér sjálfir eða tjón sem tryggður hefur sjálfur.
Hjá okkur starfar teymi sérfræðinga með yfirgripsmikla þekkingu á tryggingum og langa reynslu af því að greina þarfir fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum.










Það er mikilvægt að hafa réttar tryggingar fyrir fyrirtækið, hvort sem það á við um starfsfólkið þitt, starfsemina eða búnaðinn.
Við vinnum náið með fyrirtækjum okkar og pössum upp á það með þeim að tryggingarnar endurspegli þarfir rekstrarins á hverjum tíma. Það gerum við með því að skilja þarfir þeirra, vera til staðar og auðvelda þeim tryggingaviðskipti.