Landbúnaðartrygging
Landbúnaðartrygging er ætluð bændum sem leggja stund á hefðbundnar búgreinar svo sem sauðfjár- og nautgripabúskap. Sérhæfðan búrekstur verður að tryggja sérstaklega, s.s. loðdýra-, yl-, alifugla-, garð- og svínarækt.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Landbúnaðartrygging er ætluð bændum sem leggja stund á hefðbundnar búgreinar svo sem sauðfjár- og nautgripabúskap. Sérhæfðan búrekstur verður að tryggja sérstaklega, s.s. loðdýra-, yl-, alifugla-, garð- og svínarækt.

Tryggingamál getur verið flókið – en það þarf ekki að vera þannig. Til að gera þetta einfaldara og skýrara höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem þú getur skoðað samhliða skilmálunum.
Lausafjártrygging
Tjón af völdum eldsvoða og ef fóður ofhitnar og/eða brennur þótt eldur verði ekki laus.
Tjón vegna óveðurs þegar vindhraði fer yfir 30 m/s, verði tjónið með þeim hætti að vindur rjúfi eða felli hús sem hið vátryggða er geymt í.
Tjón á vátryggðu búfé verði það fyrir raflosti og drepst.
Tjón á vátryggðu búfé farist það af völdum umferðaróhapps, enda fáist tjónið ekki bætt af tjónvaldi eða úr ábyrgðartryggingu viðkomandi ökutækis.
Ábyrgðartrygging bænda
Skaðabótaábyrgð sem fellur á vátryggðan sem er bein afleiðing af tjóni á mönnum eða munum.
Bætur gegn skaðabótaskyldu, er starfsmenn vátryggðs baka honum gagnvart þriðja manni.
Rekstrarstöðvun bænda
Framlegðartap sem vátryggður verður fyrir við stöðvun rekstrar á vátryggingartímabilinu og leiðir til samdráttar í kjötframleiðslu af völdum bruna sem er bótaskyldur úr lausafjárttryggingu.
Aukakostnað sem vátryggður verður fyrir sem reka má til þess að fjárhús eða kálfaeldishús vátryggðs verður ekki notað af völdum bruna sem er bótaskyldur úr lausafjártryggingu.
Lausafjártrygging
Tjón af eldi sem ekki verður talinn eldsvoði s.s. tjón á munum sem verða fyrir eldi eða hita við upphitun, suðu, þurrkun, straujun, reykingu og þess háttar og brenna af þeirra ástæðu.
Tjón á tækjum eða leiðslum sem orsakast af skammhlaupi eða öðru rafmagnsfyrirbrigði, spani frá rafmögnuðu óveðri.
Óveðurstjón á munum sem staðsettir eru utanhúss.
Ábyrgðartrygging bænda
Tjón sem fjölskylda vátryggðs verður fyrir.
Tjón á munum, sem vátryggður, fjölskylda eða starfsmenn hans hafa að láni, að veði, til leigu, geymslu, flutnings, sölu, vinnslu, viðgerðar, hreinsunar, uppsetningar eða eru af öðrum ástæðum í vörslu hans.
Tjón á munum, er vátryggður, fjölskylda eða starfsmenn hans hafa tekið ófrjálsri hendi. Ekki er tjón heldur bætt á munum, sem vátryggði hefur selt en ekki afhent.
Tjón sem skyldutryggð flugvél eða skyldutryggt ökutæki veldur.
Tjón á mönnum eða munum, sem vátryggður á rétt á að fá bætt af annarri vátryggingu.
Tjón á eignum sem stafar af eldsvoða, reyk, sóti eða sprengingu.
Tjón á munum sem vátryggður hefur afhent eða afhentir eru fyrir hans reikning, að því leyti sem um er að ræða galla á hinum afhentu munum, vantanir, drátt á afhendingu eða annað þess háttar.
Eignatjón sem stafar af sprengingum, uppgreftri, aur- eða skriðuhlaupum, jarðsigi eða af því að stífla eða flóðgarður brestur.
Tjón er verða vegna byggingarframkvæmda á fasteign, sem vátryggður er eigandi að.
Rekstrarstöðvun bænda
Framlegðartap sem hlýst af rekstrartöfum vegna endurbóta, stækkunar, fjármagnsskorts fyrirmæla hins opinbera eða sambærilegra atvika.
Aukið rekstartap sem hlýst af verkbanni og/eða verkfalli
Hjá okkur starfar teymi sérfræðinga með yfirgripsmikla þekkingu á tryggingum og langa reynslu af því að greina þarfir fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum.









Það er mikilvægt að hafa réttar tryggingar fyrir fyrirtækið, hvort sem það á við um starfsfólkið þitt, starfsemina eða búnaðinn.
Við vinnum náið með fyrirtækjum okkar og pössum upp á það með þeim að tryggingarnar endurspegli þarfir rekstrarins á hverjum tíma. Það gerum við með því að skilja þarfir þeirra, vera til staðar og auðvelda þeim tryggingaviðskipti.