
Þekktu merkin
Opinn fræðslufundur um ofbeldi í nánu sambandi og hlutverk vinnustaðarins, þriðjudaginn 6. október kl. 9:00
Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.

Opinn fræðslufundur um ofbeldi í nánu sambandi og hlutverk vinnustaðarins, þriðjudaginn 6. október kl. 9:00
Vinnustaðurinn getur skipt sköpum fyrir einstakling sem býr við ofbeldi í nánu sambandi. Hann er oft einn af fáum stöðum þar sem þolandi kemst undan eftirliti geranda og fær andrými.
Á fundinum fjallar Jenný Kristín Valberg frá Bjarkarhlíð um birtingarmyndir ofbeldis í nánu sambandi, hvernig stjórnendur og samstarfsfólk geta þekkt merkin og brugðist við. Hildur Jóna, vörustjóri hjá Verði, kynnir stuðningsleyfi, nýja tryggingavernd sem auðveldar atvinnurekendum að styðja starfsfólk í slíkum aðstæðum.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Tryggðu þér sæti og skráðu þig hér fyrir neðan. Við hlökkum til að sjá þig.