Heimilisvernd 3
Alhliða vernd sem inniheldur allar helstu tryggingar sem nauðsynlegar eru fyrir heimili og fjölskyldu. Hentar vel barnafjölskyldum og þeim sem vilja hafa hærri tryggingafjárhæðir en bjóðast í Heimilisvernd 2.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Alhliða vernd sem inniheldur allar helstu tryggingar sem nauðsynlegar eru fyrir heimili og fjölskyldu. Hentar vel barnafjölskyldum og þeim sem vilja hafa hærri tryggingafjárhæðir en bjóðast í Heimilisvernd 2.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Heimilisvernd | 1 | 2 | 3 | 4 | |
|---|---|---|---|---|---|
Innbústrygging | |||||
Innbúskaskó | Valkvætt | Valkvætt | Valkvætt | ||
Ábyrgðartrygging | |||||
Neyðaraðstoð vegna ofbeldis í nánu sambandi | |||||
Slysatrygging í frítíma | |||||
Sjúkrakostnaður innanlands vegna frítímaslysa | |||||
Umönnunartrygging barna | |||||
Sjúkrahúslegutrygging | |||||
Réttaraðstoðartrygging | |||||
Áfallatrygging | |||||
Ferðarofs- og sjúkrakostnaðartrygging | Valkvætt | Valkvætt | Valkvætt | ||
Farangurtrygging | Valkvætt | Valkvætt | Valkvætt | ||
Farangurstafatrygging | Valkvætt | Valkvætt | Valkvætt | ||
Forfallatrygging | Valkvætt | Valkvætt | Valkvætt | ||
Heimaleigutrygging | Valkvætt | Valkvætt | Valkvætt | ||
Heimilisvernd 3 er algengasta fjölskylduvernd Varðar og hentar vel fjölskyldum, litlum sem stórum. Tryggingin veitir víðtæka og alhliða vernd og inniheldur allar helstu tryggingar sem nauðsynlegar eru fyrir heimili og fjölskyldu.
Tryggingin nær til tryggingataka, maka/sambýlismaka og ógiftra barna. Þessir einstaklingar þurfa að eiga sameiginlegt lögheimili á Íslandi, búa á sama stað og hafi sameiginlegt heimilishald.
Innbú eru munir sem fylgja almennu heimilishaldi og telst ekki vera hluti af fasteign eða almennu fylgifé hennar. Hlutir sem þú myndir almennt taka með þér við flutninga teljast til innbús. Við mælum hinsvegar með því að dýrir hlutir, líkt og listmunir, skartgripir, dýr reiðhjól, sérstök tómstundaáhöld og annað sem þarf að skoða sérstaklega og þarf jafnvel að sértryggja.
Ferðatrygging er valkvæð viðbót í Heimilisvernd 3. Viðbótin inniheldur ferðasjúkratryggingu, farangurstryggingu, farangurstafatryggingu og forfallatryggingu.
Við mælum með að dýrir hlutir, líkt og listmunir, munir með söfnunargildi, dýr reiðhjól og önnur dýr tómstundaáhöld séu tryggðir sérstaklega. Bætur vegna tjóns á slíkum munum eru háðar reglum um hámarksbætur sem gera það að verkum að bæturnar kunna að vera lægri en raunverulegt verðmæti hlutanna.
Það getur verið mjög misjafnt. Tryggingar eru mismunandi milli kreditkorta og við mælum með að þú skoðir vel hvaða tryggingar fylgja kreditkortinu þínu.
Tjón vegna eldsvoða eða sprengingar, svo og skyndilegs sótfalls frá kynditækjum. Skemmdir af völdum vatns, olíu eða annars vökva sem skyndilega og óvænt streymir úr leiðslum hússins þó ekki niðurföllum eða þakrennum.
Tjón vegna yfirborðsvatns, vegna skyndilegs úrhellis eða asahláku.
Tjón vegna innbrots í læst húsnæði eða bifreið. Ólæst húsnæði í ákveðnum tilfellum, sjá nánar skilmála.
Tjón vegna töku muna með líkamlegu ofbeldi eða hótunum (rán).
Skemmdarverk þ.e. skemmdir á tryggðum munum sem valdið er af ásetningi, þó ekki ef valdið af tryggðum sjálfum.
Tjón sem verður vegna ófyrirsjáanlegrar stöðvunar á kælikerfi ísskáps eða frystikistu enda leiði það til skemmda á matvælum.
Tjón sem verður vegna skammhlaups í raftækjum.
Skemmdir á hinu tryggða af völdum óveðurs, skilyrði að vindhraði nái a.m.k. 28,5 m/sek.
Tjón á dýrum.
Tjón á vélknúnum ökutækjum, hjólhýsum og tjaldvögnum.
Tjón á vörum sem ætlaðar eru til sölu.
Tjón vegna vinnu með sprengiefni við verklegar framkvæmdir.
Tjón vegna utanaðkomandi vatns, s.s. grunnvatns, úrkomu, flóða eða vatns frá þakrennum.
Tjón á innbúi vegna búferlaflutninga.
Tjón af völdum skyndilegra og ófyrirsjáanlegra atburða, sem ekki eru bótaskyld skv. hefðbundinni innbústryggingu.
Hlut sem týnist, gleymist eða er skilinn eftir á almannafæri.
Tjón af völdum eðlilegs slits, ófullnægjandi viðhalds eða framleiðslugalla.
Tjón af völdum heimilisdýra.
Skaðabætur hafi vátryggður bakað sér skaðabótaábyrgð og sá sem verður fyrir tjóni ekki meðsekur eða meðábyrgur.
Kostnað sem vátryggður verður fyrir ef skaðabótakrafa er gerð á hendur honum.
Bætir tjón sem barn vátryggðs, yngra en 10 ára veldur, án tillits til skaðabótaskyldu.
Tjón sem vátryggðir valda hverjir öðrum.
Tjón á munum sem vátryggður hefur að láni, til leigu eða geymslu.
Tjón sem verður vegna atvinnu, hvort sem um er að ræða eigin atvinnurekstur eða atvinnu í þjónustu annarra.
Innlendan sjúkrakostnað vegna slyss sem tryggður verður fyrir í frítíma.
Tannbrot vegna slyss.
Óvinnufærni sem er 50% eða meiri vegna slyss.
Varanlega læknisfræðilega örorku.
Dánarbætur vegna slyss.
Kostnað vegna læknisvottorða og örorkumats.
Slys sem verða við vinnu eða til og frá vinnu.
Slysa sem verða í akstursíþróttum.
Slys í áhættuíþróttum, svo sem teygjustökki, bjargsigi, kletta,-fjalla,- og ísklifri.
Slys sem verða við fjallgöngu af hvaða tegund sem er ef hæð er meiri en 4.000 metrar frá sjávarmáli.
Slysa sem verða á 18 ára og eldri í hnefaleikum, bardaga- glímu eða sjálfsvarnaríþróttum.
Slys sem verða á 18 ára og eldri við keppni eða æfingar fyrir keppni til undirbúnings í íþróttum innan sérsambanda ÍSÍ og skráðum félögum.
Slys sem verða vegna neyslu áfengis, fíkniefna eða annarra nautnalyfja.
Brjósklos, þursabit, liðagigt, slitgigt eða aðra gigtarsjúkdóma.
Ef sjúkdómur eða slys hefur í för með sér að barn tryggingartaka, yngra en 18 ára, þarf að læknisráði að dveljast á sjúkrahúsi í 5 samfellda daga eða lengur. Bætur eru greiddar einum forráðamanni barns.
Sjúkdóma sem voru fyrir hendi við fæðingu barns eða greinast innan 90 daga frá fæðingu.
Sjúkdóma sem voru til staðar þegar tryggingin var tekin.
Slys sem áttu sér stað áður en vátryggingin var tekin.
Tilfallinn kostnað ef tryggður þarf að breyta aðstæðum sínum vegna ofbeldis í nánu sambandi.
Ágreining sem snertir vátryggðan sem einstakling og kemur til úrlausnar dómstóla og er til lykta leitt með dómi, úrskurði eða dómsátt.
Kostnað sem hlýst af endurupptöku mála.
Mál sem varða hjónaskilnað eða sambúðarslit.
Mál sem varða forræði barna eða umgengnisrétt.
Mál sem eru í tengslum við atvinnu eða embætti vátryggðs.
Mál sem varðar fjárhagslegar ráðstafanir sem eru óvenjulegar eða óvenju umfangsmiklar fyrir einstakling.
Mál sem vátryggður gengur í ábyrgð fyrir annan.
Útlagðann kostnað við sérfræðistuðning gegn framvísun greiðslukvittana, hafi tryggður orðið fyrir sálrænu áfalli eða á við sálræn veikindi að stríða í kjölfar eftirfarandi atburða:
Innbrot á heimili tryggðs.
Heimili tryggðs verður fyrir verulegu eignatjóni.
Tryggðum munum er rænt af þeim tryggða með líkamlegu ofbeldi eða hótunum um að beita því þegar í stað.
Einhver hinna tryggðu lendir í alvarlegu slysi.
Ofbeldi af hendi maka eða sambýlismaka.
Áfall vegna atburða sem áttu sér stað áður en tryggingin tók gildi.
Erfiðleika sem tengjast ekki ákveðnu tjónsatviki sem tilgreint er undir tryggingin bætir.
Ferðakostnað allt að tryggingarfjárhæð, sem greiddur er fyrirfram eða samið um greiðslu á og ekki fæst endurgreiddur.
Tjón ef tryggður eða nákomnir s.s. maki, barn eða foreldrar, verða fyrir alvarlegu slysi, skyndilegum veikindum, líkamsmeiðslum eða öðrum sambærilegum atburðum sem staðfestir eru af lækni með læknisvottorði um að viðkomandi sé ekki ferðafær.
Forföll vegna hvers kyns veikinda eða sjúkdóma sem voru til staðar áður en tryggingin var tekin eða þegar staðfestingargjald var greitt.
Forföll sem verða vegna sjúkdóma sem verða eftir 36. viku meðgöngu.
Forföll eða kostnað vegna kynsjúkdóma.
Forföll vegna meiðsla sem menn valda sér sjálfir eða tjón sem tryggður hefur sjálfur.
Óhjákvæmilegan kostnað sem hlýst af því að vátryggður slasast, veikist eða deyr á ferðalagi erlendis s.s. sjúkrahúskostnað eða viðbótarkostnað vegna veikinda s.s. hótelkostnað.
Heimferðarkostnað, s.s. sjúkraflutningakostnað að læknisráði, breytingar á flugi og/eða sjúkraflug.
Viðbótarkostnað vegna heimferðar til Íslands vegna alvarlegra veikinda eða andláts nánustu ættingja.
Flutning á látnum einstakling.
Sjúkrakostnað sem verður á 9. mánuði meðgöngutíma, fæðingar eða fóstureyðingar.
Sjúkrakostnað vegna áframhaldandi sjúkrakostnaðar.
Lyfjakostnað vegna lyfja sem vátryggður notar reglulega áður en ferð hófst.
Tjón á farangri af völdum bruna, ráns, flutningaslyss svo og ef farangur týnist í flutningi.
Peninga, farmiða, ferðatékka, ávísanir, skuldabréf né önnur verðbréf.
Brothætta hluti.
Skemmdir sem hljótast af mölflögum, meindýrum, ástandi andrúmslofts, veðráttu eða eðlilegu sliti.
Skemmdir vegna vökva, matvæla eða annarra smitandi efna.
Tjón vegna tafa á afhendingu farangurs í áætlunar- eða leiguflugi í ferð sem varir allt að 92 samfellda daga.
Tjón vegna kaupa á nauðsynjum fyrir hvern tryggðan 18 ára og eldri ef þeir fá ekki afhentan farangurinn innan 8 klst.
Tjón vegna kaupa á nauðsynjum fyrir börn tryggingartaka yngri en 18 ára ef þau eru á ferðalagi með tryggingartaka.
Verði tafir á farangri á heimleið til Íslands.
Slys sem verða við íþróttaiðkun keppnisíþrótta.
Tannbrot vegna slysa við keppnisíþróttaiðkun.
Tímabundinn missi starfsorku 50% eða meira vegna iðkunar keppnisíþrótta.
Varanlega læknisfræðilega örorku vegna iðkunar keppnisíþrótta.
Kostnað vegna læknisvottorða og örorkumats.
Dánarbætur vegna iðkunar keppnisíþrótta.
Slys sem iðkandi verður fyrir fái viðkomandi greitt fyrir að stunda íþróttina.
Slys í áhættuíþróttum, svo sem teygjustökki, bjargsigi, kletta,-fjalla,- og ísklifri.
Slys sem verða við fjallgöngu af hvaða tegund sem er ef hæð er meiri en 4.000 metrar frá sjávarmáli.
Slysa sem verða í akstursíþróttum.
Slysa sem verða í hnefaleikum, bardaga- glímu eða sjálfsvarnaríþróttum.
Brjósklos, þursabit, liðagigt, slitgigt eða aðra gigtarsjúkdóma.