Ábyrgðartrygging stjórnar og stjórnenda (D&O)
Ábyrgðartrygging stjórnar og stjórnenda (D&O) tekur til persónulegrar ábyrgðar stjórnarmanna og annarra stjórnenda fyrirtækja. Tryggingin verndar þá gegn skaðabótakröfum sem á þá kunna að falla vegna meintra rangra athafna, þar á meðal ákvarðana, aðgerða eða aðgerðaleysis sem þeir hafa tekið eða sýnt í starfi sínu fyrir hönd fyrirtækisins.










