Netöryggistrygging
Skjót og rétt viðbrögð við netárás geta skipt sköpum. Þegar hver sekúnda telur tryggjum við snörp viðbrögð sérfræðinga og fjárhagslega vernd svo þú getir komið rekstrinum aftur í eðlilegt horf.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Skjót og rétt viðbrögð við netárás geta skipt sköpum. Þegar hver sekúnda telur tryggjum við snörp viðbrögð sérfræðinga og fjárhagslega vernd svo þú getir komið rekstrinum aftur í eðlilegt horf.

Markmið tryggingarinnar er að fyrirtæki geti brugðist hratt við, dregið úr áhrifum netárásar og komist aftur í eðlilegan rekstur sem fyrst. Tryggingin veitir fyrirtækjum tafarlausan aðgang að sérfræðingum í netöryggi og fjárhagslega vernd í kjölfar netárásar.
Hér er að finna helstu upplýsingar um trygginguna.

Netárásum fjölgar ört hér á landi og eru þær orðnar ein alvarlegasta ógn sem fyrirtæki standa frammi fyrir í dag. Á netinu skipta hvorki tími dags, tungumál né landamæri máli – árásaraðilar geta brotist inn í kerfi fyrirtækja, stolið gögnum, lamað starfsemi og ógnað bæði rekstri og viðskiptavinum.
Tryggingin er mikilvægur þáttur í áhættustýringu fyrirtækja en kemur ekki í stað tæknilegra varna, öryggisvöktunar eða markvissrar netöryggisstjórnunar.
Með einföldum en markvissum aðgerðum má draga verulega úr áhættu vegna netárása. Hér finnur þú hagnýt ráð sem hjálpa fyrirtækjum að efla netöryggi sitt og byggja upp sterkari varnir svo þau standi betur þegar netárás á sér stað.










Tryggingin veitir aðgang að sérfræðingum í netöryggi komi til netárásar sem aðstoða við rannsókn á tilurð og umfangi netárásar og jafnframt ráðgjöf um hvernig best sé að stöðva hana og lágmarka tjón.
Fyrsta viðbragð er alltaf að hringja í síma 800-4533 þar sem samstarfsaðili Varðar aðstoðar fyrirtækið. Sú aðstoð er á ensku og til staðar allan sólarhringinn.
Undir netárás fellur óheimill aðgangur þriðja aðila, eða notkun, á tölvukerfi eða gagnaeignum tryggingartaka.
Kostnað við fyrsta viðbragð frá öðrum en viðurkenndum samstarfsaðilum Varðar nema staðfest samþykki liggi fyrir.
Tryggingin bætir rekstrartjón af völdum netárásar á eigin kerfi tryggðs fyrirtækis ef netárás veldur því að fyrirtækið getur ekki notað eigin tölvukerfi eða gagnaeignir.
Með rekstrartjóni er átt við tapaðan hagnað, fastan kostnað og viðbótarkostnað til að draga úr rekstrartjóni.
Rekstrartap vegna netárásar á tölvukerfi sem ekki eru í eigu og umsjón tryggðs fyrirtækis eða samstæðu þess.
Rekstrartap sem verður á fyrstu 12 tímum netárásar og allt rekstrartap sem á sér stað 90 dögum eftir netárás.
Fjárhagstjón vegna hlutabréfa-, gjaldeyrisviðskipta eða annarra fjármálagjörninga. Þótt rekja megi tjón til netárásar.
Trygging bætir tjón vegna skaðabótaábyrgðar eða sekta sem falla á vegna gagnaleka á viðkvæmum persónuverndarupplýsingum í vörslu tryggingartaka sem rekja má til netárásar á kerfi þess.
Trygging bætir tjón vegna skaðabótaábyrgðar sem fyrirtækið ber þriðja aðila sem rekja má til netárásar á kerfi þess.
Hvers konar líkamstjón.
Lausnargjald eða annars konar fjárkúgun.
Hvers konar tjón af völdum segulsviðs.
Netöryggistrygging veitir fyrirtækjum tafarlausan aðgang að sérfræðingum í netöryggi og fjárhagslega vernd í kjölfar netárásar. Markmið tryggingarinnar er að fyrirtæki geti brugðist hratt við, dregið úr áhrifum netárásar og komist aftur í eðlilegan rekstur sem fyrst.
Fyrstu mínútur eftir netárás geta skipt sköpum. Skjót og rétt viðbrögð geta dregið verulega úr tjóni og hjálpað fyrirtækjum að koma rekstri aftur í eðlilegt horf. Þess vegna getur skipt sköpum að hafa tafarlausan aðgang að sérfræðingum sem geta aðstoðað við að stöðva atvikið og lágmarka tjón.
Netöryggistrygging er sérhönnuð fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem vilja tryggja sér aðgang að sérfræðiaðstoð og fjárhagslega vernd þegar alvarlegt netöryggisatvik á sér stað, samhliða eigin öryggisráðstöfunum.
Cyberscout er samstarfsaðili Varðar og sér um að þjónusta viðskiptavini okkar. Cyberscout er alþjóðlegt sérfræðifyrirtæki í netöryggi og viðbrögðum við netárásum. Þjónustan er á ensku og er til staðar allan sólarhringinn. Cyberscout annast jafnframt samskipti við Vörð ef atvikið leiðir til rekstrar- eða ábyrgðartjóns.
Netárás á sér stað þegar óviðkomandi aðili reynir að komast inn í tölvukerfi fyrirtækis eða fá aðgang að gögnum þess án heimildar.
Fyrsta viðbragð er alltaf að hringja í síma 800-4533. Fyrirtækið fær þá tafarlausan aðgang að sérfræðingum í netöryggi sem hjálpa til við að meta stöðuna og leiðbeina um hvernig best sé að stöðva atvikið og lágmarka tjón. Aðstoðin er á ensku og til staðar allan sólarhringinn.
Fyrirtækið greiðir enga eigin áhættu við fyrsta viðbragð þar sem sérfræðingar Cyberscout hefja greiningu, stöðvun árásar og ráðgjöf um næstu skref. Ef atvikið kallar á frekara viðbragð eða kemur til rekstrartjóns er eigin áhætta fyrirtækisins 2.000 EUR.
Þegar hringt er í Cyberscout vegna gruns um netárás þarf aðeins að gefa upp kennitölu fyrirtækisins.
Cyberscout er alþjóðlegt sérfræðifyrirtæki í netöryggi og viðbrögðum við netárásum. Fyrirtækið þjónustar fjölmörg stór fyrirtæki, fjármálastofnanir og tryggingafélög víða um heim og hefur áratuga reynslu af að aðstoða fyrirtæki þegar netöryggisatvik koma upp. Cyberscout er með starfsstöðvar í Norður-Ameríku og Evrópu og veitir aðstoð allan sólarhringinn.