Starfsábyrgðartrygging endurskoðenda
Endurskoðendum er skylt skv. lögum um endurskoðendur og endurskoðun að hafa starfsábyrgðartryggingu sem bætir almennt fjártjón sem þeir kunna að valda í starfi sínu.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Endurskoðendum er skylt skv. lögum um endurskoðendur og endurskoðun að hafa starfsábyrgðartryggingu sem bætir almennt fjártjón sem þeir kunna að valda í starfi sínu.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Skaðabótaábyrgð sem fellur á vátryggðan, þegar þriðji maður verður fyrir almennu fjártjóni, sem rakið verður til vátryggðs sjálfs eða starfsmanns hans.
Tjón sem rakin verða til ásetnings vátryggðs eða starfsmanna hans.
Tjón sem rekja má til þess að vátryggður tekur á sig ábyrgð sem er víðtækari en almenn bótaskylda hans sem löggiltur endurskoðandi.
Sektir sem falla á vátryggðan eða þriðja mann.
Líkamstjón eða skemmdir á munum.
Endurskoðunarstörf vátryggðs utan Evrópska efnahagssvæðisins eða bótaábyrgð sem er ríkari en eftir þeim reglum sem þar gilda um skaðabótagrundvöll eða ákvörðun bótafjárhæðar.










Það er mikilvægt að hafa réttar tryggingar fyrir fyrirtækið, hvort sem það á við um starfsfólkið þitt, starfsemina eða búnaðinn.
Við vinnum náið með fyrirtækjum okkar og pössum upp á það með þeim að tryggingarnar endurspegli þarfir rekstrarins á hverjum tíma. Það gerum við með því að skilja þarfir þeirra, vera til staðar og auðvelda þeim tryggingaviðskipti.