Starfsábyrgðartrygging hönnuða aðal- og séruppdrátta
Löggiltum hönnuðum er skylt skv. lögum um mannvirki að hafa starfsábyrgðartryggingu sem bætir almennt fjártjón sem þeir kunna að valda í starfi sínu.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Löggiltum hönnuðum er skylt skv. lögum um mannvirki að hafa starfsábyrgðartryggingu sem bætir almennt fjártjón sem þeir kunna að valda í starfi sínu.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Skaðabótaábyrgð sem fellur á vátryggðan hönnuð uppdrátta fyrir byggingarnefnd, þegar þriðji maður verður fyrir almennu fjártjóni, sem rakið verður til hönnunarstarfs vátryggðs og hann hefur ábyrgst með áritun á teikningu sína.
Tjón sem rekja má til ásetnings vátryggðs eða starfsmanns hans.
Tjón sem rekja má til ábyrgðar sem vátryggður tekur á sig og er víðtækari en lögmælt bótaskylda hans sem hönnuðar, er löggilding hans nær til.
Sektir eða önnur viðurlög, sem falla á vátryggðan eða þriðja mann.
Líkamstjón og skemmdir á munum.
Starfsemi vátryggðs utan Íslands eða bótaábyrgð sem er ríkari en eftir íslenskum reglum um skaðabótagrundvöll eða ákvörðun bótafjárhæðar.










Það er mikilvægt að hafa réttar tryggingar fyrir fyrirtækið, hvort sem það á við um starfsfólkið þitt, starfsemina eða búnaðinn.
Við vinnum náið með fyrirtækjum okkar og pössum upp á það með þeim að tryggingarnar endurspegli þarfir rekstrarins á hverjum tíma. Það gerum við með því að skilja þarfir þeirra, vera til staðar og auðvelda þeim tryggingaviðskipti.