Tækjatrygging
Tækjatrygging er fyrir aðila sem vilja kaupa tryggingu samhliða kaupum á nýju tæki. Tryggingin er í boði hjá söluaðilum tækja sem selja trygginguna aðeins á sama tíma og viðkomandi tæki er selt.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Tækjatrygging er fyrir aðila sem vilja kaupa tryggingu samhliða kaupum á nýju tæki. Tryggingin er í boði hjá söluaðilum tækja sem selja trygginguna aðeins á sama tíma og viðkomandi tæki er selt.

ryggingin greiðir bætur vegna skyndilegra og óvæntra óhappa í flutningi, notkun eða geymslu. Til viðbótar bætir tryggingin tjón vegna ráns eða innbrots ef ummerki eru um innbrot. Tryggingin bætir einnig tjón vegna innri vélrænna bilanna.
Skyndilegt og óvænt óhöpp í flutningi, notkun eða geymslu.
Rán eða innbrotsþjófnað úr læstri hirslu, bifreið eða húsnæði, enda séu ótvíræð ummerki um innbrot.
Innri vélrænar bilanir.
Þjófnaðar sem verður á annan hátt en tilgreindur er í 1. gr. b lið í skilmála.
Tjóna sem orsakast snöggum af hita og/eða rakabreytingum.
Tjón sem rekja má til myglu eða sveppagróðurs.
Tjón sem rekja má til eðlilegs slits, ófullnægjandi viðhalds eða tjóna sem eingöngu valda útlitsgalla en rýra ekki notagildi tryggðra tækja.
Tjón sem rekja má til galla eða rangrar samsetningar.
Tjón vegna tapaðra eða skemmdra gagna og/eða hugbúnaðar.
Tjón sem stafa af vinnslu, uppsetningu, viðgerð eða viðhaldi.
Tjón sem framleiðandi, seljandi, viðgerðaraðili eða flutningsaðili ber ábyrgð á samkvæmt samningi eða lögum.
Tjón sem rekja má til þess að tryggt tæki er mislagt, gleymist, týnist, eða er skilið eftir á almannafæri.
Óbein tjón sem leiða kann af bótaskyldum atburði, svo sem rekstrartap, töf á framleiðslu eða afhendingu vöru.