Verum tryggð á meðgöngunni
Meðgöngu- og foreldravernd er viðbótarvernd í sjúkdómatryggingu Varðar sem styður við verðandi mæður og foreldra með fjárhagslegri vernd og andlegum stuðningi ef alvarleg atvik koma upp á meðgöngu eða í fæðingu.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Meðgöngu- og foreldravernd er viðbótarvernd í sjúkdómatryggingu Varðar sem styður við verðandi mæður og foreldra með fjárhagslegri vernd og andlegum stuðningi ef alvarleg atvik koma upp á meðgöngu eða í fæðingu.

Við stöndum með fjölskyldum og viljum að verðandi mæður og foreldrar geti gengið inn í meðgöngutímabilið án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því hvort þau séu tryggð. Þess vegna er meðgöngu- og foreldravernd nú hluti af hefðbundnum sjúkdómatryggingum hjá okkur.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur meira skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.

Okkur langar að gleðja verðandi foreldra sem eru með sjúkdómatryggingu hjá okkur með fallegri gjöf — snúningslaki frá Snoozle eða barnaspegli frá Maxi-Cosi, þitt er valið! Gjöfina geturðu nálgast í næstu þjónustuskrifstofu okkar.
Það tekur aðeins tvær mínútur að fá áætlað verð í þína sjúkdómatryggingu. Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum og sérð strax hvað þínar tryggingar gætu kostað á mánuði.

Viðskiptavinir njóta afslátta og fríðinda á ýmsum vörum og þjónustu hjá samstarfsaðilum Varðar. Þú finnur afslættina á Mínum síðum.
Meðgöngu- og fæðingartengd atvik
Ef tryggður greinist með eitt af eftirfarandi á meðgöngu eða við fæðingu eru greiddar eingreiðslubætur 1.000.000 kr.:
Meðgöngueitrun
Utanlegsfóstur sem krefst aðgerðar
Missir á meðgöngu eftir 14+0 viku og þungunarrofs vegna staðfestrar greiningar á alvarlegu fósturfráviki
Alvarleg morgunógleði
Alvarleg blæðing eftir fæðingu ≥1.500 ml
Alvarleg spangarrifa (3. og 4. stigs)
Innvaxin fylgja
Fylgjulos
DIC (dreifð blóðstorknun)
Meðfætt heilsufarsástand barns
Ef barn tryggðs greinist með eitt af eftirfarandi við fæðingu eða á fyrsta ári ævi sinnar eru greiddar eingreiðslubætur 1.000.000 kr.
CP-heilalömun
Vatnshöfuð
Klofinn hryggur
Meðfæddir hjartagallar sem krefst skurðaðgerðar innan fyrstu 6 mánaða lífs barns
Holgómi og klofin vör sem krefst skurðaðgerðar eða sértækrar meðferðar
Alvarleg meðfædd byggingarfrávik í kviðvegg eða þind
Litningafrávik sem krefst langvarandi umönnunar
Klumbufótur eða alvarlegt útlimafrávik
Sjaldgæfir og lífshættulegir sjúkdómar sem uppfyllir 2 af 3 skilyrðum
Stuðningssamtöl vegna áfalla á barneignatímabil
Tryggingin veitir að hámarki fimm tíma stuðningssamtöl vegna eftirfarandi:
Bótaskylt atvik úr meðgöngu- og foreldravernd
Meðgöngu- og fæðingarþunglyndi
Missir á meðgöngu fyrir 14+0 viku
Erfið eða áfallatengd fæðingareynsla
Bráðakeisaraskurður
Ofbeldi í nánu sambandi
Afleiðingar leka á mænuvökva við mænudeyfingu (t.d. spinal höfuðverkur).
Mjög ótímabær fæðing, þ.e. barn fæðist fyrir 32. viku meðgöngutíma og hafi þurft innlögn á spítala eftir fæðingu vegna ótímabærs þroska.
Við missi á meðgöngu getur tryggður einnig óskað eftir stuðningssamtölum fyrir börn tryggðs að teknu tilliti til aldurs og aðstæðna.
Meðgöngu- og fæðingartengd atvik
Sjúkdóma eða kvilla sem voru til staðar áður en tryggingin tók gildi, þar á meðal greiningar eða einkenni sem má rekja til ástands sem hófst fyrir meðgöngu.
Þungunarrof af öðrum orsökum en læknisfræðilegum.
Önnur tilvik eða sjúkdómar sem ekki eru tilgreindir í skilmálum tryggingarinnar.
Sjúkdóma, líkamságalla eða annarra kvilla sem að einhverju leyti má rekja til neyslu áfengis, lyfja eða vímuefna.
Sjúkdóma sem eiga rót sína að rekja til fegrunar- eða lýtaaðgerða á meðgöngu.
Meðfætt heilsufarsástand barns
Heilsufarsástand barns sem var til staðar áður en tryggingin tók gildi, þar á meðal greiningar eða einkenni.
Tryggingarfjárhæðin er aðeins greidd fyrir eina af greiningunum sem taldar eru upp hér að neðan, jafnvel þó barnið sé með fleiri greiningar og jafnvel þó fleiri en eitt skírteini eru í gildi hjá tryggðum.
Skilyrði fyrir bótgreiðslum er að barnið lifi í 30 daga frá því að það greinist með sjúkdóm, aðgerð var framkvæmd eða annar tryggingaratburður átti sér stað.
Stuðningssamtöl vegna áfalla á barneignatímabili
Áfalla eða sjúkdóma sem hófust áður en tryggingin tók gildi eða verndin hófst.
Annarra atvika eða sjúkdóma en þeirra sem sérstaklega eru tilgreindir sem bótaskyld í þessum skilmálum.
Aukakostnaður, svo sem ferðakostnaður eða sambærilegir útgjaldaliðir, er ekki greiddur úr tryggingunni.
Bráð kransæðastífla/hjartadrep (Myocardial Infarction) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Kransæðaskurðaðgerð/hjáveituaðgerð (Coronary Artery Bypass Surgery) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Hjartalokuskurðaðgerð – lokuskipti eða viðgerð (Heart Valve Surgery) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Ósæðarskurðaðgerð (Aorta Graft Surgery) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Varðandi Bráð kransæðastífla/hjartadrep (Myocardial Infarction), er undanskilið hjartadrep án ST-hækkana (NSTEMI), með hækkun á Tróponíi I eða T ásamt öðrum bráðum kransæðatilfellum (acute coronary syndrome).
Varðandi Kransæðaskurðaðgerð/hjáveituaðgerð (Coronary Artery Bypass Surgery), er undanskilið aðrar aðgerðir sem ekki eru opnar, t.d. kransæðavíkkanir (PCI) og laseraðgerðir.
Varðandi Ósæðarskurðaðgerð (Aorta Graft Surgery) er undanskilið aðgerðir sem framkvæmdar eru á greinum ósæðar utan brjóst- eða kviðarhols.
Heilablóðfall/slag (Stroke).
Þverlömun (Paraplegia).
Málstol (Aphasia).
Varðandi Heilaáfall/slag (Stroke) er undanskilið skammvinnt blóðþurrðarkast í heila (TIA) og einkenni frá taugakerfi vegna mígrenis.
Varðandi Málstol (Aphasia) er undanskilið málstol sem á rætur að rekja til sálrænna kvilla.
Illkynja æxli sem einkennist af stjórnlausum vexti og dreifingu illkynja fruma ásamt ífarandi vexti í vefi.
Forstigseinkenni krabbameins.
Æxli sem eru staðbundin og ekki ífarandi (in situ).
Öll stig CIN (innanþekjuæxlisvaxtar í leghálsi).
Hodgkins-sjúkdómur á stigi 1.
Langvinnt eitilfrumuhvítblæði.
Æxli í blöðruhálskirtli á stigi T1 og Gleason-stigi 6 eða lægra.
Allar tegundir æxla þegar alnæmi er til staðar (HIV).
Kaposi‘s sarcoma.
Öll húðkrabbamein, önnur en illkynja, ífarandi sortuæxli.
Krabbamein sem greinist á fyrstu þremur mánuðum eftir gildistöku vátryggingarinnar.
MS (Multiple Sclerosis) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
MND fyrir 60 ára aldur (Alzheimer‘s Disease) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Parkinsonveiki fyrir 60 ára aldur (Parkisons´s Disease) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Varðandi Parkinsonsveiki (Parkinson’s Disease), undanskilið er Parkinsonsveiki sem er afleiðing misnotkunar áfengis eða vímuefna.
Góðkynja heilaæxli (Benign Brain Tumour).
Meiriháttar líffæraflutningur (Major Organ Transplantation).
Nýrnabilun (Kidney Failure) lokastig nýrnasjúkdóms.
Alvarleg brunasár (Third Degree Burns) þriðja stigs, sem þekja a.m.k. 20% af yfirborði líkamans.
Útlimamissir (Loss of Limbs) tveggja eða fleiri útlima.
Blinda (Blindness), varanleg og ólæknanleg sjónskerðing.
Eyðnismit við blóðgjöf, líkamsárás eða framkvæmd tiltekinna starfa (HIV Infection in blood transfusions, physical assaults, or in the performance of certain tasks).
Heyrnarleysi (Deafness) óafturkallanlegt samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Heilahimnubólga af völdum bakteríusýkingar (Bacterial Meningitis) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum. Alvarlegur höfuðáverki (Serious Head Wounds) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Varðandi Góðkynja heilaæxli (Benign Brain Tumour), undanskilið eru blöðrur (cysts), hnúðar (granulomas), heilahimnuæxli (meningiomas), seilaræxli (chordomas), æðagallar í eða á slagæðum eða bláæðum og heilamar og æxli í heiladingli eða mænu.
Varðandi Eyðnismit (HIV), undanskilið er HIV-smit sem stafar af öðrum orsökum, þ.á.m. af kynferðislegum athöfnum eða eiturlyfjaneyslu.
Ef þú ert nú þegar með sjúkdómatryggingu hjá Verði, þá ertu sjálfkrafa með nýju viðbótarverndina.
Ef ekki, þá er nóg að sækja um sjúkdómatryggingu hjá okkur til að fá verndina.
Meðgöngu- og foreldravernd veitir fjárhagslega vernd vegna ýmissa atvika sem geta komið upp á meðgöngu, í fæðingu eða ef barn greinst með meðfætt heilsufarsástand.
Bætur vegna meðgöngu- og fæðingar atvika eru 1.000.000 kr.
Bætur vegna meðfæddu heilsufarsástandi barns eru 1.000.000 kr.
Að auki útvegar félagið tryggðum foreldrum stuðningssamtöl hjá fagaðila, að hámarki 5 tímar.
Þú getur fengið greitt úr verndinni á hverri meðgöngu ef alvarlegt atvik kemur upp á meðgöngu eða við fæðingu. Hægt er að tilkynna um atvikið á Mínum síðum á vef Varðar.
Verndin nær til þeirra sem eru með sjúkdómatryggingu og gildir fyrir atvik sem eiga sér stað eftir 15. október 2025, þegar breytingin tók gildi.
Bætur vegna meðgöngu- og fæðingar atvika eru greiddar einu sinni fyrir hverja meðgöngu. Ef barn greinist með meðfætt heilsufarsástand, greiðast bætur fyrir hvert barn sem það á við.
Ef þú ert ekki með sjúkdómatryggingu hjá Verði geturðu sótt um hana um leið og þú veist að þú átt von á barni.
Ef þú ert nú þegar með sjúkdómatryggingu tekur viðbótin sjálfkrafa gildi frá og með 15. október 2025. Ef eitthvað af því sem verndin nær yfir gerist eftir þann tíma, gætir þú átt rétt á bótum eða samtölum við ráðgjafa okkar.
Nýja viðbótin kostar ekkert aukalega og veldur ekki hækkun á iðgjaldi sjúkdómatryggingarinnar.
Verndin gildir fyrir alla sem eru sjúkdómatryggðir hjá Verði – óháð aldri eða fjölskyldustöðu.
Ef þú fékkst höfnun á sjúkdómatryggingu, þá bjóðum við einnig upp á samsetta líf- og sjúkdómatryggingu fyrir ungt fólk sem er sérstaklega hönnuð með þarfir ungs fólks í huga.
Tryggingin er í boði fyrir alla unga einstaklinga, án þess að krafist sé heilsufarsyfirlýsingar. Hún gildir til 39 ára og er með stöðluðum fjárhæðum.
Nýja viðbótarverndin fyrir verðandi foreldra er einnig innifalin í þessari tryggingu.
Stuðningssamtöl fela í sér allt að fimm samtöl hjá þjónustuaðila sem Vörður hefur gert samning við.
Þjónustan miðar að því að styðja tryggðan við að vinna úr erfiðum atvikum í tengslum við meðgöngu eða fæðingu.
Samtölin geta skipt sköpum þegar fjölskyldan stendur frammi fyrir áfalli eða erfiðum aðstæðum. Þessi samtöl eru greidd af verndinni og veitir foreldrum tækifæri til að vinna úr reynslu sinni með faglegri aðstoð.
Verndin veitir bætur ef alvarleg atvik koma upp á meðgöngu eða við fæðingu, til dæmis meðgöngueitrun, alvarleg blæðing í fæðingu eða missir á meðgöngu eftir 14. viku.
Einnig geta foreldrar fengið stuðningssamtöl hjá fagaðila ef upp koma áföll á meðgöngu- eða fæðingartíma, til dæmis vegna erfiðrar fæðingarreynslu eða fæðingarþunglyndis.
Stuðningssamtöl fela í sér allt að fimm samtöl hjá þjónustuaðila sem Vörður hefur gert samning við.
Stuðningssamtöl er sá hluti meðgöngu- og foreldraverndar sem snýr að andlegum stuðningi sem foreldrum býðst ef upp koma áföll á meðgöngu eða fæðingartímabili. Eftirfarandi áföll eru eftirfarandi:
Bótaskyldu meðgöngu- eða fæðingar atvik eða greiningu á meðfæddu heilsufarsástandi barns.
Meðgöngu- og fæðingarþunglyndi.
Missi á meðgöngu fyrir 14+0 meðgöngutíma.
Erfið eða áfallatengd fæðingareynsla.
Bráðakeisaraskurður.
Ofbeldi í nánu sambandi.
Afleiðingar leka á mænuvökva við mænurótardeyfingu (t.d. spinal höfuðverkur).
Mjög ótímabær fæðing, þ.e. barn fæðist fyrir 32. viku meðgöngutíma.
Fjölburaþungun fleiri en tvö börn.
Við missi á meðgöngu getur tryggður einnig óskað eftir stuðningssamtölum fyrir börn tryggðs að teknu tilliti til aldurs og aðstæðna.
Verndin gildir á meðan meðgöngu stendur, í fæðingu og þar til barn nær 1 árs aldri.
Við mælum með því að um leið og barnið nær 1 mánaðar aldri að tryggja barnið sérstaklega með barnatryggingu okkar.
Ef veikindi eða alvarlegir atvik koma upp á meðgöngu, í fæðingu eða eftir fæðingu, getið þið sem foreldrar átt rétt á stuðningi frá ýmsum aðilum svo sem ríkinu, stéttarfélagi eða vinnuveitanda. Réttindi ykkar ráðast af því hvort þið séuð launþegar, sjálfstætt starfandi eða í námi.
Meðgöngu- og foreldravernd veitir fjárhagslegan og sálrænan stuðning við tiltekin alvarleg atvik sem geta komið upp á meðgöngu, í fæðingu eða eftir fæðingu. Þetta eru atvik sem geta haft veruleg áhrif á líkamlega eða andlega líðan foreldra.
Greiðslur úr verndinni koma til viðbótar við önnur réttindi sem foreldrar kunna að eiga, t.d. frá vinnuveitanda, stéttarfélagi eða hinu opinbera. Það skiptir ekki máli hvort þú sért með fullan rétt samkvæmt kjarasamningi, verndin tekur mið af atvikinu sjálfu og veitir stuðning óháð öðrum greiðslum.
Hægt er að lesa nánar um almenn réttindi á island.is en þau eru meðal annars:
Veikindaréttur á meðgöngu
Sem launþegi áttu rétt á veikindagreiðslum samkvæmt kjarasamningi, óháð því hvort þú sért barnshafandi eða ekki. Ef þú hefur nýtt þann rétt að fullu getur stéttarfélagið þitt veitt frekari stuðning.
Aukinn réttur fæðingarorlofs vegna veikinda
Ef foreldri sem gengur með barn verður ófært um að annast barn sitt í fæðingarorlofi vegna alvarlegra veikinda sem má rekja til meðgöngu eða fæðingar, er heimilt að lengja fæðingarorlof eða fæðingarstyrk.
Sorgarstyrkur
Foreldrar sem missa barn fyrir 18 ára aldur þ.m.t. ef barn fæðist andvana eftir 22 vikna eða ef missir á meðgöngu verður eftir 18 vikna meðgöngu, eiga rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk.
Veikindaréttur vegna veikinda barns
Ef barn veikist alvarlega eða er langveikt tryggja kjarasamningar rétt á launuðu leyfi vegna barna.
Athugið að réttur samkvæmt kjarasamningum á eingöngu við um þau sem eru launþegar en ekki t.d. um sjálfstæða atvinnurekendur eða námsmenn.
Ef þú greiðir í sjúkrasjóð stéttarfélags getur þú átt rétt á greiðslum úr honum vegna veikindi barns.
Einnig getur Tryggingarstofnun ríkisins veitt umönnunargreiðslur ef barn veikist alvarlega eða er langveikt.
Verndin nær til þeirra atvika sem eru sérstaklega tilgreind í skilmála sjúkdómatrygginar. Meðgöngu- og fæðingartengd atvik eru:
Meðgöngueitrun
Utanlegsfóstur sem krefst aðgerðar
Missir á meðgöngu eftir 14+0 viku og þungunarrofs í kjölfar staðfestu fósturfráviki
Alvarleg morgunógleði
Alvarleg blæðing eftir fæðingu
Alvarleg spangarrifa
Innvaxin fylgja
Fylgjulos
DIC (dreifð blóðstorknun)
Meðfætt heilsufarsástand barns eru:
CP-heilalömun
Vatnshöfuð
Klofinn hryggur
Meðfæddir hjartagallar
Holgómi og klofin vör
Alvarleg meðfædd byggingarfrávik í kviðvegg eða þind
Litningarfrávik
Klumbufótur og alvarlegt útlimafrávik
Alvarlegur súrefnaskortur í fæðingu
Aðrir sjaldgæfir sjúkdómar sem uppfylla ákveðin skilyrði